Fasteignaleitin
Skráð 17. jan. 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
77.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
101.900.000 kr.
Fermetraverð
1.314.839 kr./m2
Fasteignamat
7.890.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elísabet Kvaran
Elísabet Kvaran
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532727
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Fasteignasalan Hlíðarhorn kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 508.

Vönduð og stórglæsileg 2ja herbergja rúmgóð þakíbúð á 5. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 77,5 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með einstaklega vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofa/borðstofa með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Satínhvít eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, satínhvít innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki úr burstuðu krómi. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0030. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Afhending íbúðar: Gert er ráð fyrir fyrstu afhendingu íbúða í Valshlíð 3 í lok mars 2025.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins.

Athygli kaupenda er vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Önnur gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa:

  1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
  3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
  4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Smyrilshlíð 9
102 Reykjavík
97.3 m2
Fjölbýlishús
313
1006 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
1308 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
85.5 m2
Fjölbýlishús
211
1297 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin