SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝJAR OG VANDAÐAR ÍBÚÐIR Í HJARTA SAN MIGUEL* *SUNDLAUG OG SÓLBAÐSAÐSTAÐA Á ÞAKI* *LYFTUHÚSNÆÐI* *VERSLANIR, VEITINGASTAÐIR OG ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI* 2JA, 3JA OG 4RA HERB. ÍBÚÐIR Í BOÐI*Íbúðirnar eru á jarðhæð, fyrstu hæð og annari hæð. Á þakinu er sundlaug og góð aðstaða til að njóta sólarinnar. Húsið er í byggingu og er ný komið í sölu, hér er frábært tækifæri til að tryggja sér íbúð á mjög góðu verði, í hjarta San Miguel de Salinas.
Íbúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja og með einu eða tveimur baðherbergjum. Stofa og eldhús í björtu opnu rými með útgengi út á svalir. Vandaðar innréttingar.
2ja herbergja íbúðir frá 125.000 evrum eða 18.100.000 (m.v. gengi 1evra/145ISK)
3ja herbergja íbúðir frá 130.000 evrum 18.800.000 (m.v. gengi 1evra/145ISK)
4ra herbergja íbúðir frá 190.000 evrum 27.500.000 (m.v. gengi 1evra/145ISK)
Fallegar og vel hannaðar nýjar íbúðir á frábæru verði á góðum stað í San Miguel de Salinas, rótgrónum spænskum smábæ rétt hjá fjölmörgum góðum golfvöllum og í örstuttu göngufæri frá verslunum, veitingastöðum, skóla, götumarkaði ofl. sem gerir lífið á Spáni skemmtilegt. Um 40-50 mín akstur suður af Alicante.
Flottur sundlaugargarður, fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábæru verði.
Allar upplýsingar gefa
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,Sennilega ein bestu kaupin á svæðinu í dag.
Þessar íbúðir voru að koma í sölu og því rétti tíminn til að velja sér góða íbúð.
San Miguel de Salinas er notalegur, hefðbundinn spænskur bær með sál og sjarma, kirkjutorgi og götumarkaði.
Hér er um að ræða notalega eign í rólegu og fallegu umhverfi. Tilvalið fyrir ungar barnafjölskyldur sem vilja búa í sól og góðu veðri allt árið, enda er góður skóli í örstuttu göngufæri og öll þjónusta í nærumhverfi. Einnig draumastaður golfarans sem vill spila marga og skemmtilega golfvelli.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isVið erum rótgróin íslensk fasteignasala og höfum um árabil sérhæft okkur í sölu fasteigna á Spáni.
Löggiltir íslenskir fasteignasalar með mikla reynslu af fasteignasölu á Spáni sjá um allt söluferlið og leggja áherslu á trausta og örugga þjónustu.
Í boði eru góðar heildarlausnir þar sem öllu kaupferlinu er fylgt vel eftir frá upphafi til enda.
Við aðstoðum við að skipuleggja skoðunarferðina, velja staðsetningu og heppilega eign, kaupsamningsgerð, útvegum NIE númer, aðstoðum við fjármögnun, bankamál og allt sem til fellur.
Þú ert í góðum höndum hjá okkur.
Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl. Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendu garð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum). Árlega eru skemmtilegar bæjarhátíðir eins og td. hin vinsæla TAPAS fiesta. Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og öll þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl.
Í bænum er líka skemmtileg blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum!
Það er góð leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia.
Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu.
San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi.
San Miguel de Salinas er sérlega vinalegur bær sem við vitum að þú munt elska!
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, svalir, sameiginlegur sundlaugargarður,
Svæði: Costa Blanca, San Miguel de Salinas, San miguel,