LÆKJASMÁRI 6, 201 KÓPAVOGUR. Falleg og vel skipulögð þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 6. hæð við Lækjasmári 6.
Birt stærð eignar er skráð 119,9 fm. hjá FMR.
Sjálf íbúðin er 103,9 fm., en að auki er 4,5 fm. sérgeymsla í kjallara. Samtals 108,4 fm.
Stæði merkt nr. 0072 í bílageymslu er skráð í 11,5 fm. í fasteignaskrá, sem endurspeglar 1/24 hlutdeild í sameign bílageymsluhúss.EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARAÞriggja herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi, miðsvæðis í Kópavogi. Byggt 1999 og klætt með viðhaldsléttri klæðningu.
Sameign er mjög snyrtileg og þar er m.a. aðstaða til að stunda líkamsrækt. Tvær lyftur eru í húsinu.
Stæði í bílakjallara fylgir íbúðinni, og einnig eru mörg bílastæði á plani.
Nánari lýsing:Parket lögð forstofa og gangur með innbyggðum fataskáp.
Rúmgóð og björt stofa með útgeng á flísalagðar suðursvalir sem eru yfirbyggðar að hluta. Glæsilegt útsýni.
Í eldhúsi eru flísar á milli efri og neðri skápa, Whirpool uppþvottavél og Siemens keramik helluborð og bakaraofn. Borðkrókur við enda eldhússins.
Tvö svefnherbergi með fataskápum. Auðvelt er að bæta við þriðja svefnherberginu á kostnað stofu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa. Ágætis innrétting með góðu skáparými.
Flísalagt þvottahús innan eignar.
Sérbílastæði merkt 0072 í bílageymsluhúsi. Rafhleðslustöð frá ON, sem hægt er að leigja eða kaupa.
Í kjallara er 4,5 fm.sérgeymsla, auk þess eru skápar fyrir hverja íbúð í sameign sem eru nýttir m.a. undir dekk.
Hjóla- og vagnageymsla er við inngang hússins.
Snyrtileg sameign, tvær lyftur og vel rekið húsfélag.
Góð og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað í Smárahverfi Kópavogs í nálægð við Smáralind og aðra fjölbreytta þjónustu.Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is