Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Keilusíða 9 íbúð 203 - Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi - stærð 88,0 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér geymslu í sameign og sameiginlegt gufubað.
Nánari lýsing:Forstofan er flísalögð með fataskáp og opnu fatahengi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, flísum á milli skápa, góðu skápaplássi og borðkrók. Uppþvottavél og ísskápur er innbyggt, nýtt síðan 2025 og fylgjir með við sölu eignarinnar.
Stofan er mjög rúmgóð og björt með plastparketi á gólfi og einföldum innbyggðum skáp sem nýtist sem kústaskápur í dag. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til vesturs með góðu útsýni.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með mjög rúmgóð með plastparketi á gólfi og fataskápum settum upp 2023. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til austurs einnig með góðu útsýni.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og við baðkar, innréttingu með handlaug og efriskápum, baðkari með sturtutækjum, tengi fyrir þvottavél (ný í mars 2026) í lítilli innréttingu sem getur fylgt með við sölu og opnanlegum glugga.
Sér geymsla er í kjallara, nokkuð rúmgóð með hillum.
Í sameign hússins er
gufubað sem nýtist vel í dag sem og sturtur. Einnig er sameiginlegt þurrk rými og hjólageymsla
Annað:
- Eldhús, gólfefni, hurðar og baðherbergi hafa verið endurnýjuð á síðustu árum
- Ljósleiðari er komin inn og tengdur
- Sér geymsla fylgir í sameign
- Gufubað er í sameign í kjallara
- Stutt í leik- og grunnskóla
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.