**EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR**STAKFELL 535-1000 KYNNIR Í EINKASÖLU: Glæsileg 143,2 fm, þriggja herbergja íbúð á neðri hæð með sér inngangi, í Akrahverfinu, Garðabæ. Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, þar sem eldhús er inndregið, tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi, þvottahús og 24,8 fm geymslu í sameign. 13,2 fm svalir út frá stofu, með möguleika á svalalokun. Stæði í bílakjallara fylgir, lyfta fer í kjallara. Garður fyrir framan og aftan hús og stæði fyrir framan hús. Góð staðsetning í Garðabæ þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir og skóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@stakfell.is.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sér inngang og inn í rúmgott, flísalagt anddyri með fataskáp. Eldhús er hluti af alrými með stofu og borðstofu. Rúmgóð, viðarlituð innrétting upp í loft með grárri borðplötu, viftu, helluborði, og bakaraofn í vinnuhæð. Stofa er björt, með útgengt á suðursvalir. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað með fataskáp og hitt með fataherbergi inn af. Baðherbergi er flísalagt, með viðarlitaðri innréttingu og efri skápum, upphengt salerni og sturta og baðkar. Þvottahús er með hvítri innréttingu. Eik er á gólfum íbúðar, nema í anddyri og votrýmum. Stór geymsla með glugga er í bílakjallara, getur nýst sem vinnuherbergi eða skrifstofa. Stæði í bílakjallara fylgir íbúð.
Eignin er á vinsælum stað í Garðabæ þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, þjónustu, samgöngur, verslanir og íþróttasvæði.
Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
eignarhús. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.