Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hafnarstræti 81 íbúð 206 - Skemmtileg stúdíóíbúð í lyftuhúsi í miðbænum - Stærð 42,8 m².Eignin skiptist í forstofu/gang, baðherbergi, eldhús og stofu í opnu rými og svefnpláss/herbergi innaf, auk sérgeymslu á jarðhæð.
Forstofa/gangur er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Þaðan er útgangur í hellulagt húsasund.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með handlaug, sturtuhorn, vegghengt wc og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús og
stofa eru í opnu parketlögðu rými. Í eldhúsi er ljós innrétting með dökkri bekkplötu og flísum á milli skápa. Bakaraofn, helluborð og háfur.
Svefnpláss er innaf alrými, með parketi á gólfi.
Sér geymsla er á jarðhæð, skráð 3,4 m²
Annað- Mynddyrasími.
- Vel staðsett eign í miðbænum
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.