Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli miðsvæðis í Kópavogi að Hamraborg 36. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Nýlega var skipt um gólfefni, eldhús og baðherbergi endurnýjað.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð 67,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með parket á gólfi og góðan yfirhafnaskáp.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Þegar núverandi eigendur keyptu hafði verið sett aukaherbergi sem þau tóku niður.
Eldhús er nýlegt með góðri innréttingu og flísar á gólfi. Tengi fyrir bæði þvottavél og uppþvottavél.
Svefnherbergi er rúmgott með góðan fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er nýlegt, flísalagt í hólf og gólf með baðkar, innréttingu og skáp.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Frábær staðsetning og stutt í skóla og alla þjónustu.Endurbætur/viðhald á sameign:2016 til 2017- umfangsmiklar framkvæmdir utanhúss • Húsið málað og steypuviðgerðir framkvæmdar • Timburverk yfirfarið • Þak viðgert að hluta • Gler endurnýjað þar sem þörf var á.
2018 - Dyrasímar endurnýjaðir
2020 - Þak yfirfarið og metið í góðu ástandi
2021 - Múrviðgerð framkvæmd við inngang að bílageymslu
2022 - LED lýsing sett upp í sameign• Hitastrengir settir í niðurföll
2025 - Þvottahús endurbætt• -Nýtt rafmagn lagt í þvottahúsi -• Tenglum fjölgað svo íbúar geti tengt eigin þvottavélar og þurrkara
2026 - Hitagrind hússins endurnýjuð að fullu - • Ofn í sameign endurnýjaður
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is