Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Valshlíð 3 - íbúð 406

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
118.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.425.000 kr.
Fermetraverð
951.142 kr./m2
Brunabótamat
69.250.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
67 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532687
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Ásett verð miðast við 75% sameignarkaup.

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 – Íbúð 406.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Tilbúin til afhendingar.

Sameignarkaup — þú fjármagnar aðeins 75% af kaupverði: 112.425.000

  • 75% verð: 112.425.000 kr.
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (11.242.500 kr.)
  • 0% leigugreiðsla í allt að 36 mánuði ef þú nýtir kauprétt innan þess tíma
  • Spurningar og svör um sameignarleiðina á s8.is/sameign

Sameignarsamningur er undirritaður samhliða kaupsamningi.

Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar, þar sem þú færð aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum með rafrænum skilríkjum og getur gert tilboð beint. Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 583 2000. Hafðu samband og bókaðu skoðun.

4–5 herbergja horníbúð á 4. hæð með glugga á þrjá vegu og útsýni í vestur. Birt stærð er 118,2 fm þar af 11,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir og svalir, 3–4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt, blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 3.

Nánari lýsing: Fataskápur í anddyri. Gengið er úr anddyri inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á útsýnissvalir í vestur og tæplega 30 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott. Eldhús með stórri eyju með vaski. Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa, blöndunartæki úr burstuðu krómi, innbyggður ísskápur og vínkælir. Hjónaherbergi með fataskápum og þrjú svefnherbergi með skápum; hægt er að fækka um eitt herbergi og stækka alrýmið sem því nemur. Baðherbergi með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með mattri áferð, speglaskápur með lýsingu og innbyggð blöndunartæki úr burstuðu krómi. Sér þvottaherbergi inn af baðherbergi með ljósum innréttingum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla í kjallara merkt 0028 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingarfyrirkomulagi þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Um Hlíðarhorn

Hlíðarhorn er 3–5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 íbúðir, 2–5 herbergja. Hverri íbúð fylgja svalir, þaksvalir eða sérafnotareitur í innri garði, og íbúðirnar eru hannaðar með tilliti til náttúrulegrar birtu og nýtingar fermetra. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd álklæðningum í mismunandi litum ásamt við, með gluggum úr ál/við.

Hlíðarhorn er í 102 Reykjavík, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við fætur Öskjuhlíðar. Þjónusta, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða og stórir vinnustaðir eru í göngu- og hjólafæri.

Bílakjallari

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samnýttur samkvæmt deiliskipulagi. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnum íbúðum hefur verið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum; kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallarans samhliða kaupum.

Nánari upplýsingar

Á www.hlidarhorn.is má sjá allar íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni. Skilalýsing seljanda ásamt upplýsingum um hönnun og byggingu er einnig á heimasíðu verkefnisins.

Athugið

Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af endanlegu brunabótamati.

Auk kaupverðs greiðir kaupandi:

  • Stimpilgjald af kaupsamningi — 0,4% við fyrstu kaup, 0,8% almennt, 1,6% hjá lögaðilum, af fasteignamati.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og öðrum skjölum — 3.800 kr. af hverju skjali.
  • Lántökugjald samkvæmt verðskrá lánastofnunar.
  • Umsýslugjald samkvæmt gjaldskrá Heima fasteignasölu.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 1
Skoða eignina Valshlíð 1
Valshlíð 1
102 Reykjavík
107.1 m2
Fjölbýlishús
312
784 þ.kr./m2
83.925.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 1
Skoða eignina Valshlíð 1
Valshlíð 1
102 Reykjavík
107 m2
Fjölbýlishús
312
826 þ.kr./m2
88.425.000 kr.
Skoða eignina Samtún 2
Skoða eignina Samtún 2
Samtún 2
105 Reykjavík
137.2 m2
Parhús
724
786 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
118.2 m2
Fjölbýlishús
514
951 þ.kr./m2
112.425.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin