ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og rúmgóða 115,6 fm. fjögurra herbergja fjölskyldu íbúð á jarðhæð með sólpalli að Engjadal 2 í Reykjanesbæ. Heimild er fyrir því að stækka sólpallinn enn frekar á suðurgafl eignar. Virkilega smekkleg eign í fjölskylduvænu hverfi, stutt út á Reykjanesbraut.
Nánari upplýsingar veita:Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Síma
560-5501Netfang
pall@allt.isHelgi Bjartur Þorvarðarson
Löggiltur fasteignasali,
í síma
7702023,Netfang
helgi@allt.isNánari lýsing eignar:Anddyri flísalagt með góðum fataskápum: Úr forstofu er gengið inn í flísalagt 9,2 fm þvottahús með góðri innréttingu og geymslu með hillum.
Rúmgóð og björt
stofa með parketi á gólfi, með útgengi á suðursvalir. Gluggar eru á þrjár hliðar sem gerir rýmið bjart.
Eldhúsið er rúmgott með hvítri smekklegri innréttingu og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Góð hvít Innrétting, vegghengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofni.
Hjónaherbergi er stórt eða nettó 14,9 fm með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi bæði í góðri stærð eða 10 fm og 11.5 fm.
Gólfhiti í allri eigninnni.
Leiktæki á sameiginlegri lóð.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.