Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2024
Deila eign
Deila

Hólavegur 17

EinbýlishúsNorðurland/Siglufjörður-580
225.1 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
52.500.000 kr.
Fermetraverð
233.230 kr./m2
Fasteignamat
21.100.000 kr.
Brunabótamat
44.620.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1934
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2130434
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
ágætt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
pallur
Lóð
100
Upphitun
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamiðlun ehf kynnir fallega og mikið endurgerða eign að Hólavegi 17, 580 Siglufjörður, fastanúmer 213-0434 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð eignar er 179,7 fm. Eignin var stækkuð með viðbyggingu við anddyri og eldhús árið 2011. Fullbúin 3 herbergja íbúð er í kjallara hússins sem hefur verið í útleigu. Fylgieining eignarinnar er bílskúr að Hólavegi 15b, fastanúmer 213-0429 en birt stærð bíslkúrs er 54,6 fm. 

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali og viðskiptalögfræðingur, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Nánari lýsing 
Þriggja hæða eign með íbúð í kjallara sem hefur verið í útleigu. Fallega endurgert að hluta og haldið í upprunalegt útlit. Viðbyggingu var bætt við 2011 þar sem anddyri og eldhús eignar
var stækkað. Einnig var byggður pallur framan við inngang. 
Gengið er inn á miðhæð eignarinnar inn í flísalagt anddyri með gráum náttúruflísum og hiti er í gólfi. Andyrið er viðbygging sem byggð var við húsið 2011. Veggir hafa verið klæddir með panel. Inn af anddyri er gengið inn í hol þar sem upprunalegt gólfefni hefur verið gert upp og panell á veggjum hefur verið lagfærður og gerður upp að hluta. Eldhúsið var lagfært að hluta og stækkað með viðbyggingu. Innréttingar eru gamlar sérsmíðaðar í funkis stíl. Panell er á veggjum og parket á gólfi. Raflagnir hafa verið teknar í gegn á miðhæð og kjallara. Sérstakir rofar í anda tímabils eignarinnar sem fengnir voru erlendis voru settir upp. Pottofnar hafa verið yfirfarnir og málaðir og tengdir inn á nýjar lagnir. Stofa og borðstofa liggja saman og veggur var tekin niður sem áður var herbergi og stofa þannig stækkuð. Baðherbergi hefur einnig verið tekið í gegn á miðhæðinni en upprunalegt gólefni er á gólfum sem búið er að pússa og lagfæra. Flísalagður sturtuklefi, ikea innrétting með sérsmíðuðum frontum og ikea vask. Búið er að skipta um lagnir á baðherbergi og panell er á veggjum. 
Upprunalegur stigi er á efri hæð sem búið er að gera upp. Einnig búið að setja gips plötur, einangra og klæða stigaganginn með panel og loftið með gipsplötum. Skipt var einnig um þéttull þegar húsið var klætt.
Á efstu hæð eignarinnar sem er að hluta til undir súð eru 3 rúmgóð svefnherbergi. Gólfefni hefur verið tekið í gegn að hluta en ekki í svefnherbergjum. Geymslupláss er á tveimur stöðum inn í vegg undir súð og búið er að klæða og leggja rafmagn í aðra þeirra svo hægt er að nýta það rými í kósýhorn. Hægt er að komast upp á loft en það er ekki manngengt. 

Á neðstu hæð er sérútbúin íbúð sem hefur verið í útleigu. Sérinngangur er á austuhlið eignarinnar og gengið er inn í flísalagt anddyri. Eldhús hefur verið tekið í gegn og settar ikea innréttingar með sérsmíðuðum frontum. Parket er fljótandi í gegnum íbúðina. Tvö rúmgóð herbergi eru í íbúðinni. Baðherbergi er flísalagt með dökkum náttúruflísum. Sturtuklefi er einnig flísalagður með hvítum flísum. Innréttingar eru frá Ikea með sérsmíðuðum frontum, ljósri borðplötu og ikea vaski. Gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingunni. Skipt hefur verið um vatnslagnir og raflagnir. Nýjar hurðar og karmar. Innangengt er í þvottahús/geymslu þar sem stigi var upp á efri hæð en búið er að fjarlægja og loka fyrir. Útgengt er úr þvottahúsi/geymslu.  

Húsið hefur verið klætt að utan og einangrað. Skipt var um alla glugga og múrhúð löguð í kjallara. Drenað hefur verið frá eigninni að ofanverðu. Stigi er niður í garðinn sunnan megin og steyptur veggur norðan megin. Skipt var um þak og háaloft einangrað. 
Garður er graslagður og girtur af einnig er fánastöng í garði. 
Bílskúr á lóðinni þarfnast lagfæringar en skráð stærð hans er 54,6 fm með tveimur hurðum. 

Eldhús: á efri hæð er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa: liggja saman í opnu rými með frábæru útsýni með upprunalegum gólfpanel á gólfi sem hefur verið pússaður og lakkaður. 
Baðherbergi: er með upprunalegum gólfpanel á gólfi og panel á veggjum. Grænbláar mósaík flísar í sturtu með nýlegum blöndunartækjum. Ikea skápar með sérsmíðuðum frotnum, vaskur og klósett. 
Svefnherbergi: eru þrjú á efstu hæð. Dúkur á gólfi í herbergjum. Tvær geymslur undir súð. 

Íbúð á neðri hæð:
Eldhús: er rúmgott með góðu skápa- og borðplássi. Einnig er gott pláss fyrir borðkrók. Parket er á gólfi. 
Svefnherbergi: eru tvö mjög rúmgóð með parket á gólfi og nýjum hurðum. 
Baðherbergi: Flísalagt með gráum flísum á gólfi. Walk in sturta flísalögð með hvítum flísum. 
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1967
45.4 m2
Fasteignanúmer
2130429
Byggingarefni
steypa
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
2.330.000 kr.
Lóðarmat
668.000 kr.
Fasteignamat samtals
2.998.000 kr.
Brunabótamat
9.970.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásvegur 7
Bílskúr
Skoða eignina Ásvegur 7
Ásvegur 7
621 Dalvík
262.8 m2
Einbýlishús
615
209 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 25 - 2 íbúðir
Brekkugata 25 - 2 íbúðir
625 Ólafsfjörður
211.4 m2
Hæð
725
241 þ.kr./m2
51.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvegur 7
Bílskúr
Skoða eignina Ásvegur 7
Ásvegur 7
621 Dalvík
262.8 m2
Einbýlishús
515
209 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Mararbraut 3
Skoða eignina Mararbraut 3
Mararbraut 3
640 Húsavík
188.9 m2
Einbýlishús
514
291 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin