Falleg og vel skipulögð 3 herbergja íbúð í lyftuhúsi við Þórðarsveig 2 Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, svefnherbergi, hjónaherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og baðherbergi. Geymsla er sér í sameign og stæði í lokaðri bílageymslu
Nánar:
Forstofa með flýsum og fatahengi
Stofa er björt með parketi og útgangi út í garð sem er sér að hluta
Barnaherbergi með parketi og fataskápum
Baðherbergi rúmgott með baðkari og sturtu í baði
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi
Sérgeymsla er í sameign
Bílastæði vel staðsett í lokaðri bílageymslu
Stutt í verslun og þjónustu ásamt fallegu útivistarsvæði í næsta nágrenni
Allar upplýsingar veittar eftir bestu getu og með fyrirvara um innsláttarvillur. Stærð 20m2 útisvæðis í garði er áætluð og verður mæld nákvæmlega síðar. Verið er að mála þrífa og standsetja íbúðina og því engar myndir að innan en koma fljótlega. Ísskápur, þvottavélar, ljós, gardínur og einhver húsgögn og húsbúnaður geta fylgt ef óskað er. Eignin er laus til afhendingar
Forsendur söluyfirlits:
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupandi sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Seljandi getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja seljendur því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
113 | 84,9 | 72,9 | ||
111 | 60,4 | 47,9 | ||
221 | 75,6 | 62,9 | ||
270 | 150 | 119,9 | ||
221 | 109,7 | 88,2 | ||
301 | 80 | 59,7 |