Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali og Lind fasteignasala kynna einstaklega fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja eign við Engjaþing 1-3, í Kópavogi. Mjög barnvænt hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla og verslun. Íþróttamiðstöðin Kórinn er stutt frá ásamt fallegum útivistarperlum. Eignin er skráð samkvæmt FMR 166,7 fm og þar af er 29,3 fm bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús í opnurými með borðstofu og stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús vönduð innrétting með hvítum frontum frá Brúnás með góðu skápa- og vinnuplássi, bakaraofn í vinnuhæð. Quarts steinn á borðum, eldunarseyja með spanhellu borði. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa bjart opið rými, parket á gólfi, útgengt á rúmgóðan sólpall.
Hjónaherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi II rúmgott herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi III rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting með speglaskáp. Walk-in sturta, baðkar, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús innan íbúðar, með innréttingu og vask, flísar á gólfi.
Sólpallur rúmgóður sólpallur sem snýr til suðvesturs.
Bílskúr 29,3 fm, epoxy á gólfi.
Geymsla innaf bílskúr.
Bílastæði fyrir framan bílskúr, hleðslustöð.
Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.