Skráð 20. maí 2021
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
39.800.000 kr.
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
200050722
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
Svalir og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti, ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
*GLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ VIÐ GOLFVÖLL* – *GOTT ÚTSÝNI*

Rúmgóð og vel skipulögð penthouse íbúð á tveimur hæðum með svölum og þaksvölum vel staðsett í góðu lyftuhúsi við Las Ramblas golfvöllinn,  um 50 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa/borðstofa í opnu rými, vel útbúið eldhús. Þvottahús inn af eldhúsi. Góðar svalir út frá stofu með gler svalalokun. Stór þakverönd. Flott útsýni. Stæði í bílakjallara og geymsla. Penthouseíbúðin er endaíbúð, sem gerir hana mjög prívat og flotta. Án vafa ein flottasta íbúðin í sölu á Las Ramblas í dag.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is.

Nánari lýsing.

Á neðri hæð er komið inn í gott anddyri og þaðan er gengið inn í stofu/borðstofu, sem er vel tengt eldhúsi og skapar gott flæði milli rýma. Arinn í stofu. Þvottahús með glugga inn af eldhúsi. Á neðri hæðinni eru einnig tvö svefnherbergi, bæði með skápum. Nýuppgert og fallegt baðherbergi. Góðar svalir út frá stofu með fallegu útsýni og glersvalalokun.
Á efri hæðinni er rúmgott svefnherbergi með sér nýuppgerðu baðherbergi. Útgengi út á stóra þakverönd. Af stigapalli framan við svefnherbergið er einnig útgengi út á þakveröndina. Mjög góð aðstaða er á þakveröndinni, er yfirbyggð að hluta og er hún nýlega flísalögð með vönduðum flísum. Einnig er grasteppi að hluta, útisturta og góð aðstaða til að grilla og njóta. Handriðið hefur nýlega verið hækkað með gleri, sem skapar aukið öryggi. Frábært útsýni yfir gróið og fallegt umhverfið.
Loftkæling/hiti. Öryggiskerfi. Nýlega var sett upp ofnakerfi, sem tryggir jafnan og góðan hita allt árið.

Íbúðin selst með húsgögnum og húsbúnaði eftir samkomulagi.

SÉRLEGA VÖNDUÐ, FALLEG OG MIKIÐ ENDURNÝJUÐ EIGN Á FRÁBÆRUM STAÐ. ALGJÖR DRAUMAEIGN GOLFFJÖLSKYLDUNNAR.

Sameiginlegur lokaður sundlaugargarður.
Íbúðin er vel staðsett og í stuttu göngufæri við Las Ramblas klúbbhúsið sem býður upp á góðar veitingar og iðar af  skemmtilegu golfmannlífi allt árið. Göngufæri í  La Fuente þjónustukjarnan, þar sem er gott úrval góðra veitingastaða, verslana og þjónustu. Auk þess eru í næsta nágrenni góðar matvöruverslanir eins og Aldi, Mercadonna og Iceland. Fjölmargir fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romero, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 10 mín. akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Verð: 265.000 Evrur + kostn. (ISK 39.800.000 gengi 1E=150 ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með  hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni  verið ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.


Eiginleikar: golf, útsýni, bílakjallari, geymsla, þakverönd, air con, endursölueign, lyfta, ofnakerfi, sameiginlegur sundlaugargarður, BBQ, endaíbúð,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
200050722
Fasteignanúmer
200050722
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.eignir.isEignir í sölu

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Balcones
SPÁNAREIGNIR - Los Balcones
Spánn - Costa Blanca
90 m2
Raðhús
433
458 þ.kr./m2
41.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
92 m2
Fjölbýlishús
423
415 þ.kr./m2
38.200.000 kr.
Skoða eignina LA Zenia Sumareignir
La Zenia Sumareignir
Spánn - Costa Blanca
80 m2
Fjölbýlishús
322
474 þ.kr./m2
37.900.000 kr.
Skoða eignina Villamartin Draumaeign golfara
Villamartin Draumaeign golfara
Spánn - Costa Blanca
98 m2
Fjölbýlishús
422
406 þ.kr./m2
39.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache