Um er að ræða tvær íbúðir í flottu tvíbýli á Krókstöðum í Eyjafjarðarsveit, austan Akureyrar. Húsið stendur á eignarlóð er sem 7,800 m2 og er í sameign.
Íbúð neðri hæðar er 119,2 m2 og skiptist í tvö herbergi, þvottahús, geymslu, baðherbergi, eldhús og stofu.
Íbúð efri hæðar er 132,1 m2 og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, svalir, eldhús, þvottahús, gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Sameiginleg geymsla er utangengd á neðri hæð.
Nánari lýsing neðri hæðar:
Herbergi: eru tvö, plastparket á gólfum, fataskápar eru í báðum herbergjum.
Þvottahús: þar er málað gólf, hvítir skápar og vaskur.
Geymsla: er með plastparket á gólfi, hvítar vegghillur.
Baðherbergi: er með hvítri innréttingu, flísar á gólfi og hluta veggja, sturta.
Eldhús: þar er plastparket á gólfi, hvít innrétting með lágum ískáp, bakaraofn í vinnuhæð, flísalagt upp á veggi og borðplötu, í borðkrók er matarborð fest við eldhúsinnréttingu, stórir gluggar til suðurs.
Stofa: er rúmgóð, plastparket á gólfi, borðstofukrókur, stórir gluggar til vesturs, útgengt út á viðarpall sunnan við hús.
Nánari lýsing efri hæðar:
Forstofa: Er með harðparket á gólfi, fataskápur.
Stofa: Er rúmgóð, harðparket á gólfi, hátt til lofts.
Borðstofa: Er á hækkuðum palli, harðparket á gólfi, góðir gluggar til suðurs, vesturs og norður. Útgengt á opnar svalir til vesturs með glæsilegu útsýni.
Eldhús: Þar er harðparket á gólfi, baðplötur á veggjum, búrskápur, hvít innrétting með innbyggðum ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð. Dökk borðplata, helluborð með innbyggðri viftu, svartur vaskur og blöndunartæki.
Þvottahús: Flísar á gólfi, hvít innrétting með ljósri borðplötu í viðarútliti, flísar á hluta veggja og gluggi til austurs, utangengt er úr þvottahúsi.
Gngur: Tengir saman svefnherbergin og baðherbergi, harðparket á gólfi, innbyggður viðarskápur er á ganginum, gluggi til norðurs.
Svefnherbergi:
- Hjónaherbergi: Þar er harðparket á gólfi, góður fataskápur og gluggi til austurs.
- Svefnherbergi: Harðparket á gólfum svefnherbergja, fataskápar, og gluggar til norðurs.
Baðherbergi: Er með gráum parketflísum á gólfi, baðplötur á veggjum, dökk innrétting, upphengt salerni, walk-in sturta með reyklituðu gleri, gluggi til vestur.
Viðarverönd: Fyrir framan hús með skjólvegg og heitum potti.
Annað:
- Nýlegar lagnir í ofnum á báðum hæðum.
- Nýlega skipt um allt gólfefni (fyrir utan þvottahús), eldhúsinnréttingu og baðherbergi uppgert á efri hæð.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is