Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Holtabrún 15 Bolungarvík - Mikið endurnýjað stórt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt góðum bílskúr og aukaíbúð á neðri hæð.
Á efri hæð er forstofa, þvottahús, salerni, eldhús, búrgeymsla, stofa og borðstofa með útgengi á sólpall, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Á neðri hæð er sér íbúðarrými sem hentar vel til útleigu eða skammtímaleigu, sérinngangur, baðherbergi, geymsla, eldhús og stofa/svefnherbergi og annað svefnherbergi.
Nánari lýsing.
Efri hæð: Inngangur á efri hæð, forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur með nýlegu harðparketi. Gestasalerni er á gangi, nýleg innrétting og vaskur, flísar á gólfi.
Þvottahús er við hlið forstofu með sérinngangi, ný hvít innrétting þar og flísar á gólfi.
Rúmgóð stofa og borðstofa í samliggjandi rými með með nýlegu harðparketi á gólfi og nýrri loftaklæðningu með innfelldum ljósum.
Svalahurð út nýlegan og stóran sólpall sem nær yfir suður og vesturhlið hússins.
Mjög fallegt útsýni úr borðstofu yfir bæinn og víkina.
Eldhús er með nýlegri hvítri innréttingu og harðparketi á gólfi, helluborð, ofn, örbylgjuofn, spanhelluborð og vifta, innbyggð uppþvottavél.
Inn af eldhúsi er nokkuð rúmgóð búrgeymsla með nýlegri innréttingu og skápum, ágætt vinnupláss þar.
Svefnálmugangur með harðparketi á gólfi og fataskáp, við enda svefnálmugangs er hleri og stigi milli hæða, búið er að loka hleranum en auðvelt að opna á milli aftur.
Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum.
Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi og tveimur fataskápum.
Annað stórt herbergi með harðparketi á gólfi.
Þriðja herbergið er minna, harðparket á gólfi þar einnig.
Baðherbergi endurnýjað að hluta, nýr sturtuklefi og skápur, innrétting, flísar á gólfi.
Neðri hæð:
Séríbúð í kjallara.
Sérinngangur að framanverðu á neðri hæð.
Gangur með flísum.
Rúmgóð flísalögð geymsla.
Eldhús og stofa í opnu rými. Eldhús með hvítri innréttingu með vaski, laus ofn/helluborð.
Baðherbergi endurnýjað, innrétting, sturtuklefi og flísar á gólfi.
Stórt svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Bílskúr er skráður 32,8 m² að stærð og er með steyptu gólfi, timburhurð, tveir vaskar og hillur.
Yfirbyggður gangur milli húss og bílskúrs nýtist sem köld geymsla, eins er rúmgóð köld geymsla undir stétt að framanverðu.
Steypt bílastæði fyrir framan bílskúr. Stór og gróinn garður.
Framkvæmdir frá 2024:
Baðherbergi efri hæð endurnýjað. Salerni á efri hæð endurnýjað fyrir utan klósettið sjálft.
Baðherbergi á neðri hæð lagað til, skápur og innrétting.
Veggur settur upp á milli gangs og herbergis. Geymsla flísalögð og loft klætt.
Húsið málað að utan og borið á sólpall 2026.
Framkvæmdir frá 2021 frá fyrri eiganda:
Eldhús endurnýjað, innrétting og tæki frá Ikea. Innrétting í búrgeymslu sett upp. Nýtt harðparket á efri hæð að mestu. Ný innrétting í þvottahús og flísar.
Fimm nýir rafrmagnsofnar til kyndingar. Neðri hæð innréttuð.