Fasteignaleitin
Skráð 16. nóv. 2026

Ánanaust 5 - íbúð 606 - Vesturvin

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
107.7 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
89.000.000 kr.
Byggt 2024
6. hæð
Svalir
Heitur pottur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25239811
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Einstaklega vönduð og falleg útsýnisíbúð með stórum þaksvölum á 6. hæð í Vesturvin. Vegleg hjónasvíta, gólfsíðir gluggar, aukin lofthæð og einstakt útsýni til sjávar og vestur yfir borgina. Þaksvalirnar teygja sig umhverfis íbúðina frá suðvestri til norðurs. Möguleiki er á að koma fyrir heitum potti á svölunum.  Hágæða innréttingar frá ítalska merkinu Cassina, steinn á borðum og vönduð heimilistæki frá Miele og Siemens. Gólfhiti er í allri íbúðinni sem og loftskiptikerfi sem tryggir góð loftgæði. Veglegt viðarparket er á gólfum. Sérmerkt stæði fylgir íbúðinni í bílageymslu. Afar falleg aðkoma er að Vesturvin bæði frá sjávarsíðunni sem og frá inngarðinum. Fallegur gróður, lýsing og listaverk setja svip sinn á inngarðinn. 

**Sækja söluyfirlit** 

Bókið skoðun: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Eignin er skráð 107,7fm og telur forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, 82 fm þaksvalir, þvottahús, geymslu og stæði í bílageymslu.
 
Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög gott skápapláss með innfelldri lýsingu. Skápar ná upp í loft.
Eldhús: Eldhús er opið við stofu í mjög björtu og opnu alrými með glæsilegu útsýni. Vegleg, ítölsk innrétting frá Cassina með steini á borðum, stórri eyju og innfelldri lýsingu. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir. Tæki eru frá Miele og Siemens. 
Stofa: Gólfsíðir gluggar og einstakt útsýni til sjávar, til vesturs yfir borgina, út á Gróttu og Snæfellsnes. Útgengi á þaksvalir. 
Þaksvalir: Þaksvalirnar eru 82 fm og teygja sig umhverfis íbúðina frá suðvestri til norðurs með stórkostlegu útsýni. Möguleiki er á að koma fyrir heitum potti á svölum.
Hjónasvíta: Rúmgóð með góðum fataskápum og gólfsíðum gluggum með útgengi út á þaksvalir. Flísalagt baðherbergi er inn af hjónaherbergi með stórri walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og veglegri innréttingu með stein á borðum. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtu. 
Herbergi: Gott herbergi með gólfsíðum glugga og útgengi út á þaksvalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með stórri walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Vegleg innrétting og steinn á borði. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtu.
Þvottahús: Sér þvottahús er innan íbúðar. Góð innrétting með rými fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur í innréttingu.
Geymsla: Góð 7,7 fm geymsla er staðsett á geymslagangi í kjallara hússins.
Bílageymsla: Eigninni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri, upphitaðri bílageymslu.

Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallgerðargata 1A
Copy of Sæþór_vefur (1).jpg
Hallgerðargata 1A
105 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
312
927 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 412
Hleðslustöð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Copy of Sæþór_vefur-2.jpg
Skoða eignina Laugaborg 412
Laugaborg 412
105 Reykjavík
92,5 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 316
Hleðslustöð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
IMG_9328.JPG
Skoða eignina Laugaborg 316
Laugaborg 316
105 Reykjavík
94,1 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 214
Hleðslustöð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Copy of Sæþór_vefur-2.jpg
Skoða eignina Laugaborg 214
Laugaborg 214
105 Reykjavík
117,8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin