ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu.Snyrtilegt 4ra herbergja raðhús á góðum stað í hólahverfinu á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni, bárujárn er á þaki.
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.
Nánari lýsing:
Flísar eru á gólfi í forstofu. Baðherbergi er flísalagt, þar er fín innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni og sturta.
Harðparket er gangi, geymslu og herbergjum. Fataskápar eru tveimur herbergjum. Þriðja herbergið er geymsla á teikningu en er hægt að nýta sem herbergi.
Falleg innrétting með góðum tækjum er í eldhúsi, harðparket er á gólfi.
Stofan er parketlögð en þar er hurð útá sólpall á baklóð.
Loft eru klædd með þiljum. Halogenlýsing eru í flestum loftum.
Geymsluloft er yfir hluta hússins.
Góður sólpallur er á baklóð og þar er geymsluhús, lóðin er gróin og mulningur er í innkeyrslu.
Sutt er í leikskóla og skóla.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í 482-4800.