Miklaborg kynnir: Afar fallegt 126,6 fm enda raðhús með stórum suðurgarði á þessum vinsæla stað í neðstu röð við Fossvogsdalinn. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Einstök staðsetning við opið útivistasvæði með Snælandsskóla, leikskólann Furugrund og íþróttasvæði Fagralunds í næsta nágrenni.
Frábær fjölskyldueign!
Nánari lýsing:
Neðri hæð: Komið inn í gang sem leiðir inn í hol neðri hæðar. Stórt svefnherbergi er til hliðar á ganginum með fataskápum. Þvottahús og geymsla er handan gangsins. Þar er mjög stór innrétting m.a. fyrir þvottavél og þurrkara ásamt miklu skápaplássi og vinnuborði með vask. Geymslurými eru undir húsinu með aðkomu í gegnum hlera í gólfinu. Frá holi neðri hæðar eru tvö svefnherbergi, annað er gott hjónaherbergi með fataskápum en þaðan er gengið út í garð. Hitt herbergið er gott með fataskápum. Snyrting og sturtuaðstaða er í sitt hvoru rýminu með aðgengi frá holinu. Snyrtingin er með salerni og lítilli innréttingu með vask og flísum á gólfi. Sturturýmið er með flísalögðum veggjum og flísum á gólfi, sturtuklefi og innrétting með vask.
Efri hæð: Stigi frá holi upp á efri hæð. Rúmgóð, stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Út frá stofu eru rúmgóðar svalir sem liggja eftir allri suðurhlið hússins. Eldhús er vel útbúið með miklu skápaplássi, innréttingin er ljós, tækjaskápur í innréttingu, ofn í vinnuhæð og setuborð við enda eldhússins. Herbergi er inn af stofu. Geymsla með fellistiga er í rislofti upp af herberginu.
Megin gólfefni hússins eru parket en dúkur er á þvottahúsi, holi og gangi.
Garður: Mjög fallegur suðurgarður fylgir eigninni. Þar er stór sólpallur næst húsinu, gras og trjágróður annars staðar en lóðin er afgirt að mestu.
Húsið stendur innst í botnlanga og hafa eigendur gert samkomulag um skiptingu bílastæða en bílastæði fyrir þetta hús er fyrir framan húsið. Bílskúrréttur er á lóð hússins að sögn eigenda.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin.
Umhverfi gerist vart fallegra þar sem Fossvogsdalur með alla sína kosti og gönguleiðir liggur að húsinu. Þar er mikil barna- og fjölskyldustemming með fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Einstök staðsetning!
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 223,3 | 184,9 | ||
200 | 62,4 | 67 | ||
200 | 127,1 | 119 | ||
200 | 114,3 | 108 | ||
200 | 62,1 | 67 | ||
200 | 109 | 104 |