LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:Um er að ræða vel skipulagt fjögurra herbergja 152.2 fm raðhús á einni hæð á þessu vinsæla hverfi í Víkurhverfinu í Grafarvogi.
Eignin er töluvert mikið endurnýjuð, skjólgóður sólpallur til suðurs með heitum potti (hitaveituskel), geymsluskúr í garði, gott bílaplan framan við húseign.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði, alla þjónustu og stofnbrautir.
Fjölskylduvæn eign á frábærum stað í Grafarvogi.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 117 fm merkt 02-01-01 og bílskúr er 35.2 fm merkt 02-01-02, samtals 152.2 fm. Geymsluskúr er í garðinum.Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
sveinn@landmark.isGuðrún Diljá lögg.fasteignasali s. 895-5181 eða
gudrun@landmark.isFÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í:Forstofu, hol/alrými, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og innbyggðan bílskúr.
Verönd með heitum potti.
Nánari lýsing á eign:Framan við inngang í hús er
verönd til norð-austurs.Komið er inn í
forstofu og úr forstofu er inngengt í bílskúr og er geymlsa á milli palli áður en gengið er niður í bílskúr sem að er nýtt sem
skrifstofuherbergi.Hol/alrými þaðan sem að gengið er í önnur rými eignar og er það nýtt sem
sjónvarpsstofa.Stofa/borðstofa er opið og bjart rými sem að rennur saman, góð lofthæð í stofunni og er útgengt
úr stofu út í garð til suðurs það sem að er
verönd með heitum potti (hitaveituskel) og geymsluskúr í garði.Eldhús er rúmgott og opið að hluta inn í alrými er með nýlegri snyrtilegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, vönduð eldhústæki, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og þá er innbyggður ísskápur í innréttingu, fallegt útsýni er til
norð-austurs úr eldhúsi.
Þrjú góð
svefnherbergi og eru fataskápar í öllum herbergjum, rafdrifin þakgluggi í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og veggjum, baðkar og hlaðin sturtuklefi, góð innrétting undir vask og veggskápar með miklu geymsluplássi, rafdrifinn þakgluggi á baðherbergi.
Þvottaherbergi er rúmgott með rúmgóðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur í borðplötu.
Bílskúr er mjög rúmgóður og innst í bílskúr (undir geymslu/skrifstofu) er búið að útbúa
geymslurými.Gólfefni: Harðparket, flísar og korkflísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat