Fasteignaleitin
Skráð 24. júní 2026

Höfuðból 205

SumarhúsSuðurland/Hella-851
141.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
98.000.000 kr.
Fermetraverð
694.051 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
251581119
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir: Einstaklega fallegt og vel byggt sumarhús, í náttúruparadísinni Landsveit, Rangárþingi ytra.
Gólfsíðir gluggar, stór suðurverönd og óhindrað útsýni! 


Húsið er um 140 fermetrar að stærð á einni hæð.

Nýbygging sem er afhent fullbúin að utan og tilbúin til innréttinga að innan.
Sumarhús fyrir þá sem vilja nægt rými, fallegt hús og víðáttumikla náttúru með einstaka fjallasýn.


Samkvæmt skráningu HMS er sumarbústaðurinn skráður 138,2 fermetrar að stærð. 
Landið er eignarland og 1,1 hektari að stærð. 

Nánari lýsing á Höfuðbóli 205.
Komið er inn í rúmgott anddyri, sem er miðja hússins. Þar er minna baðherbergið, gólfsíðir gluggar og rennihurð út á stóra verönd til suðurs.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými, þar eru gólfsíðir gluggar og óhindrað útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú öll rúmgóð. Úr stærra baðherberginu er útgengt út á verönd. Inn af stærra baðherberginu er þvottahús/geymsla, þar er einnig útgengt. Heimreiðin og planið fyrir framan húsið er tilbúið eins og því verður skilað.  Lóðin umhverfis húsið er "villt" í mosa- og kjarri vöxnu umhverfi.

Hönnuður hússins: Gunnlaugur Ó. Johnson, arkitekt. 
Húsið er timburhús á steyptum sökkli með gólfhita í ílögn. Hluti burðarvirkisins er stál. Gólfhiti er lagður í allt húsið og er tengdur við jarðvarmadælu frá NIPE. 
Gluggar og hurðir: Ál/tré frá IdealCombi 
Utanhúsklæðning: Bandsöguð timburklæðning. Máluð og grunnuð af framleiðanda. Viðhaldslítil. 
Þak: Er klætt tveimur lögum af ábræddum þakpappa. 
Verönd: Bankirai harðviður sem er sérstaklega þétt og gott pallaefni, ljósbrúnn og endingargóður harðviður frá Asíu. Hann er með slétt yfirborð og gránar með tímanum.
Deiliskipulag: Samkvæmt Deiliskipulagi er heimilt að byggja tvö hús á lóðinni, frístundahús og gestahús/geymslu. Hús á einni hæð og mænishæð getur verið allt að 5 metrar miðað við yfirborð lands við húsið. Aðalhús getur verið allt að 250 fermetrum og aukahús allt að 50 fermetrum. Nýtingarhlutfall þó ekki hærra en 0,03. 
Umhverfi: Umhverfis húsið er sérstaklega fallegt þar sem mosinn og kjarrið ráða ríkjum en sumstaðar rísa upp stærri tré. Skógræktarfélag Rangæinga hefur verið landeigendum innan handar, í hrauninu er vex sjálfsáinn birkiskógur. 
Fjallasýn: Útsýni er til allra átta og mörg þekkt fjöll í nágrenni, Hekla, Búrfell, Bjólfell, Tindfjöll, Eyjafjallajöklull og Þríhyrningur svo einhver séu nefnd. 

Nánari upplýsingar og bókun einkaskoðunar:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali, s. 844 6447 / gunnlaugur@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% fyrstu kaup, 0,8% síðari kaup, 1,6% lögaðilar. Prósentan er af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bræðraborgarstígur 13
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Bræðraborgarstígur 13
101 Reykjavík
84.7 m2
Fjölbýlishús
312
942 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.702
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin