ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Tjarnabraut 20 í 260 Reykjanesbæ er björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi með góðum svölum á fjölskylduvænum stað í innri Njarðvík. Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, baðherbergi, þvottaherbergi með geymslu. Frá forstofu er komið inn í hol sem er miðja heimilsins og þar er gengið inn í öll rými íbúðarinnar. Stofa og eldhús mynda stórt alrými með útgang út svalir. Stórt og mikið bílastæði framan við hús.
Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS alls 91,2 ferm*** Nýlegt parket frá 2022
*** Vel staðsett eign við Akurskóla og stutt út á Reykjanesbraut
*** Verslun og sjoppa í göngufæri*** Vinsælar og vel skipulagðar eignir á fjölskylduvænum stað í innri Njarðvík. Nánari lýsing eignar:Forstofa: Rúmgóða forstofa með flísum á gólfi og fatahengi
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með borðkrók og góðri innrétting og tækjum. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa sem er opin með eldhúsi. Gengið er út 8,8 fm svalir frá stofu.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Með snyrtilegri vask innréttingu, baðkar með sturtu, upphengt salarni, handklæða ofn og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi/geymsla: Þvottaherbergi er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gert ráðf fyrir vask. Gengið er inn í geymslu frá þvottarými.
Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla, sem og hilla í sameiginlegri geymslu.
Lóðin: Vel hirt lóð í sameign með fallegum garði með leiktækjum fyrir börn.
Allar nánari upplýsingar veitir: Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7720102, tölvupóstur asgeir@allt.is ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.