Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2026

Tunguhella 9G

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
152.8 m2
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
359.293 kr./m2
Brunabótamat
40.200.000 kr.
Byggt 2026
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
25358708
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Höfði fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt og einstaklega vel hannað atvinnubil við Tunguhellu 9G, 221 Hafnarfirði, á eftirsóttu atvinnusvæði í Hafnarfirði.Um er að ræða 152,8 fm iðnaðarhúsnæði sem skiptist í 108,3 fm neðri hæð og 44,5 fm efri hæð með steyptri plötu og svölum. Bilið verður afhent fullbúið á byggingarstigi 7. Einstök hönnun með gegnumakstri.

Einn helsti kostur eignarinnar er að hún er með innkeyrsluhurð í báðum endum, sem gerir kleift að keyra í gegnum bilið og auðveldar alla vörumóttöku, lagerhald og umferð stærri tækja og ökutækja. Innkeyrsluhurðirnar eru báðar 3,0 metrar á breidd, önnur 3,7 metra há og hin 3,1 metra há, báðar með rafmagnsopnun.

Vandaður frágangur: Epoxýhúðað gólf á neðri hæð - Steypt plata á efri hæð - Svalir ásamt stórum gluggum sem tryggja gott birtuflæði - Álgluggar og álinngangshurð - Gólfhiti á neðri hæð - 
Lagnir fyrir ofna á efri hæð - Burðarvirki úr stáli - Þak með stálsperrum og þakklæðning ileiningar.  - 15cm. einangraðar samlokueiningar í útveggjum - Staðsteyptar undirstöður og botnplata.

Byggingin: Tunguhella 9 er vandað stálgrindarhús sem samanstendur af níu atvinnubilum á stærðarbilinu 152,8–179,0 fm. Húsið er hannað með þarfir nútíma atvinnurekstrar í huga og hentar afar vel fyrir lagerrekstur, léttan iðnað, verkstæði, þjónustufyrirtæki og netverslanir. Á lóðinni eru 28 bílastæði og sameiginleg olíuskilja fyrir svæðið. Einnig er gert ráð fyrir möguleika á uppsetningu rafhleðslustöðva.

Virðisaukaskattskvöð hvílir á eigninni og yfirtekur kaupandi hana við kaupin. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á, sem nemur 0,3% af endanlegu brunabótamati.

Spennandi tækifæri til að eignast nútímalegt og vel hannað atvinnuhúsnæði þar sem áhersla er lögð á sveigjanleika, vandaðan frágang og hagkvæma nýtingu rýmis.

Frekari upplýsingar veita: Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA, lögg. fasteignasali, Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is og Ásmundur Skeggjason lögg. fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895-3000.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Óseyrarbraut 17
Skoða eignina Óseyrarbraut 17
Óseyrarbraut 17
220 Hafnarfjörður
1.857,3 m2
Atvinnuhúsn.
14
Fasteignamat 475.600.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Breiðvangur 10
Bílskúr
Skoða eignina Breiðvangur 10
Breiðvangur 10
220 Hafnarfjörður
142,6 m2
Fjölbýlishús
513
595 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Straumhella 7Y
Skoða eignina Straumhella 7Y
Straumhella 7Y
221 Hafnarfjörður
36,8 m2
Atvinnuhúsn.
514 þ.kr./m2
18.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 406
Strandgata 26 íb. 406
220 Hafnarfjörður
140,2 m2
Fjölbýlishús
413
1105 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin