EIGNAVER 460 6060
Birkilundur 19 Akureyri.
ATH: Húseignin er seld með fyrirvara...
Glæsilegt, mikið endurnýjað og bjart 5-6 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr á góðum stað á Brekkunni. Húseignin er 205,1 fm. á 1.008,0 fm. hornlóð. Laus við kaupsamning.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísar á gólfi .
Sjónvarpshol, parket á gólfi.
Stofan er mjög rúmgóð og nýtist vel sem aðalstofa og borðstofa. Parket á gólfi.
Svefnherbergin í húsinu er fjögur í dag. Parket á gólfum herbergja og nýir fataskápar í þeim öllum. ATH: Búið er að breyta tveimur herbergjum í eitt ( auðvelt að breyta aftur ).
Baðherbergið er glæsilegt, flísar á gólfi og veggjum uppí loft. Rúmgóð " walk in " sturta. Falleg innrétting og handklæðaskápur. Upphengt WC og gluggi með opnanlegu fagi.
Eldhúsið er rúmgott og bjart. Glæsileg hvít innrétting. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Parket á gólfi og flísar að hluta til ofan við bekkplötu.
Þvottahús er við bakinngang hússins. Góð innrétting í þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Geymsla er við þvottahús, flísar á gólfi.
Snyrting er við forstofu, uppgerð, neðri skápur og flísar á gólfi.
Heitur pottur er norðan við húsið.
Bílskúr, steypt gólf, gryfja og rafdrifin bílskúrshurð með góðri innkeyrsluhæð. Gluggi í austur-enda bílskúr.
Annað:
- Undanfarin fjögur ár þá hefur húseignin verið mikið endurnýjuð og eftirfarandi verðið framkvæmt :
- Skipt um glugga og gler í öllu húsinu, ( frá Berkinum ) nema gluggi og gler í enda bílskúrs er ekki endurnýjað.
- Endurnýja allar innréttingar, gólfefni og innihurðir.
- Loftaklæðning endurnýjuð og kubbaljós fylgja með.
- Rafmagn yfirfarið og endurnýjað eftir þörfum, rafmangstenglar endurnýjaðir.
- Þak viðgert eftir þörfum og yfirfarið af fagmönnum.
- Útveggir hússins viðgerðir og húsið málað að utan og innan. Inntök endurnýjuð, skólplagnir myndaðar.
- Mjög góð verönd fyrir framan húsið.
- Húseignin er í
einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
*** Virkilega fallegt og stílhreint hús á frábærum stað á Brekkunni. ***
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is