Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2024
Deila eign
Deila

Munkaþverárstræti 19

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
224 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
102.500.000 kr.
Fermetraverð
457.589 kr./m2
Fasteignamat
73.250.000 kr.
Brunabótamat
78.770.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1937
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2149320
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi - Búið er að endurnýja tengla, raflagnir og töflu
Frárennslislagnir
Talið í lagi, hefur verið endurnýjað allt nema lögn frá þvottahúsi í brunn á austurlóð
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja alla glugga í íbúðarhúsi
Þak
Talið í lagi - búið er að endurnýja járn á helming íbúðarhúss og setja nýja einangraun, 9" steinull
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - gólfhiti er í hluta
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Útfellingar eru á vegg sem snýr til austurs í þvottahúsi. Nýlega var vesturveggur á sjónvarpsholi pússaður/málaður og gert við útfellingar sem þar voru.
Nokkrar lausar gólfflísar
Fúgu vantar á milli flísa á hluta í þvottahúsi.
Eignin er ekki í samræmi við teikningar
Munkaþverárstræti 19 - Skemmtilega staðsett og vel viðhaldið 7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr á neðri Brekkunni - stærð 224,0 m² - þar af telur bílskúr 28,0 m²
Möguleiki er að útbúa útleigueiningu á neðri hæðinni.


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Efri hæð, 124,0 m²:
Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Neðri hæð, 72,0 m²: Þvottahús, tvær geymslur, sjónvarpshol, svefnherbergi og baðherbergi.

Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita og innfelldri lýsingu í lofti. Hitalagnir eru í neðri tröppunum fyrir framan húsið, ótengdar.
Eldhús, vönduð hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Ljósar flísar milli skápa og korkur á gólfum. Ágætur borðkrókur með hornglugga með útsýni til austurs.
Stofa og borðstofa eru hjartað í húsinu, rúmgott rými með flísum á gólfi, góflhita og innfelldri lýsing í loftum. Nýleg kamína er í stofunni. 
Sjónvarpshol er á neðri hæðinni og þar er ljóst plast parket á gólfum.
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Á efri hæðinni eru ljósar flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, handklæðaofn, walk-in sturta og opnanlegur gluggi. Á neðri hæðinni eru flísar á gólfi og hluta veggja, handlaug, upphengt wc, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni og eitt á neðri. Hjónaherbergi er með flísum á gólfi og stórum viðarlituðum fataskáp. Barnaherbergin á efri hæðinni eru bæði rúmgóð og með flísum á gólfi og annað þeirra er með gólfhita. Á ganginum á milli barnaherbergjanna er hurð út til vesturs á timbur verönd. Herbergið á neðri hæðinni er einnig rúmgott, með plastparketi á gólfi og gólfhita.  
Steyptur stigi er á milli hæða og á stigapallinum er hurð út til norður sem nýtist sem annar inngangur fyrir eignina. 
Þvottahús er með flísum á gólfi og ljósri plastlagðri innréttingu. 
Tvær geymslur eru í kjallaranum og eru þær báðar ókynntar.

Bílskúrinn stendur fyrir neðan húsið, skráður 28,0 m² að stærð og með byggingarár 1958. Þar er lakkað gólf, vinnuborð og eldri hurð með gönguhurð í. Bílskúrinn er kynntur með affalli af íbúðarhúsi. 

Annað
- Lofthæð á neðri hæðinni er um 2 metrar.
- Gólfhiti er í stofu, borstofu og einu svefnherbergi á efri hæð og í öllum rýmum fyrir utan geymslur á neðri hæð.
- Búið er að endurnýja öll inntök.
- Búið er að endurnýja raf-, hitaveitu- og vatnslagnir. 
- Lóðin er gróin og falleg. Timburverönd er með hluta af suðurhliðinni og allri vesturhliðinni. Við endann á veröndinni er geymsluskúr fyrir garðhúsgögn o.fl. Nýr heitur pottur er á veröndinni, (2024).
- Steyptir lóðarveggir eru fyrir framan húsið og tvö sér bílastæði.
- Búið er að drena með hliðum hússins og endurnýja frárennsli. Eftir er að endurnýja frárennsli frá þvottahúsi og út í brunn á lóð. Sett var einangrun utan á kjallaranum í framkvæmdunum.
- Búið er að endurnýja þakjárn á tveimur hliðum og setja nýja 9" einangrun í allt þakið.
- Búið er að endurnýja alla glugga í íbúðarhúsinu og gluggar fyrir bílskúr fylgja með við sölu.
- Fjölskylduvæn eign á vinsælum stað á neðri Brekkunni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/07/201733.500.000 kr.59.000.000 kr.224 m2263.392 kr.
04/11/201327.150.000 kr.38.000.000 kr.224 m2169.642 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1958
28 m2
Fasteignanúmer
2149320
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.570.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Spónsgerði 3
Bílskúr
Skoða eignina Spónsgerði 3
Spónsgerði 3
600 Akureyri
173.2 m2
Einbýlishús
524
635 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hamragerði 8
Bílskúr
Opið hús:21. maí kl 16:15-17:00
Skoða eignina Hamragerði 8
Hamragerði 8
600 Akureyri
172.1 m2
Einbýlishús
514
592 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Skoða eignina Espilundur 3
Skoða eignina Espilundur 3
Espilundur 3
600 Akureyri
169.4 m2
Einbýlishús
614
590 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Eikarlundur 12
Bílskúr
Skoða eignina Eikarlundur 12
Eikarlundur 12
600 Akureyri
169.2 m2
Einbýlishús
64
585 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache