Fasteignaleitin
Skráð 3. maí 2023
Deila eign
Deila

Naustabryggja 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
131.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
668.441 kr./m2
Fasteignamat
73.500.000 kr.
Brunabótamat
73.770.000 kr.
Byggt 2017
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2355005
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðar í húsi
4
Hæðar í íbúð
2
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Upprunlegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunlega
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
4,7 fm svalir
Lóð
0,99
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
* Samkvæmt stjórn stendur til að fara í viðgerðir á þaki sem greitt verður úr framkvæmdasjóði félagsins. - Samkvæmt seljanda er ÞG verk búið að koma í veg fyrir lekan. Var um að ræða þéttingu á klæðingu sem féll innan ábyrgðar byggingaraðila.
* Á aðalfundi 2022 var stjórn meðal annars veitt heimild til að afla tilboða í ledvæðingu í bílageymslu. - Samkvæmt seljanda er búið að greiða fyrir ledlýsingu og koma henni uppí bílakjallara og ruslageymslu. Um var að ræða eingreiðslu sem hver íbúi greiddi aukalega í hússjóð.

* Núverandi eigendur er nýlega búin að kaupa og setja upp rafhleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Rafhleðslustöðin fylgir ekki með íbúðinni.
Valhöll fasteignasala kynnir nýlega og glæsilega 4ra herbergja endaíbúð á 4. hæð (efstu hæð) í nýlegu lyftuhúsi við Naustabryggju 17 í Bryggjuhverfinu við Gullinbrú.  Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi þar á meðal rúmgóð hjónasvíta, tvö baðherbergi og mikil lofthæð. Bílastæði fylgir í bílakjallara.

Eignin er í heildina skráð 131,5 fm á stærð sem skiptist í 119,6 fm íbúð og 11,9 fm geymslu.

Íbúðin er að hluta til á tveimur hæðum. Neðri hæðin skiptist í forstofu / gang, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Efri hæðin skiptist í vinnurými og hjónasvítu með baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara og vel staðsett stæði í bílakjallara, með möguleika á rafhleðslu fyrir rafmagnsbíl. Búið er að tengja rafmagn við bílastæðið og setja upp grind fyrir rafhleðslustöð. Rafhleðslustöð fylgir ekki með.

Húsið var byggt af ÞG Verk árið 2017 og er því um nýlega eign að ræða. Íbúðin lítur vel út með mikilli lofthæð í stofu, eldhúsi og hjónasvítu. Húsið er klætt að utan með vönduðum ál- og tréklæðingum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Innréttingar frá GKS innréttingum. Harðparket og flísar á gólfum. Þetta er glæsileg íbúð sem vert er að skoða.

Mikil uppbygging á sér stað í hverfinu og á nærliggjandi hverfum eins og má sjá rammaskipulagi um Elliðaárvog og Ártúnshöfða. Áherslur verða lagðar á blandaða byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis með fjölbreyttum grænum svæðum inn á milli. Sjá nánar : https://skipulag.reykjavik.is/hofdinn/wp-content/uploads/2021/03/Hofdinn-nyr-borgarhluti-i-motun.pdf

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa / gangur: með fataskáp og parketi á gólfi.
Þvottahús: með þvottasnúrum, flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1: 14,5 fm svefnherbergi með fataherbergi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: 10,1 fm svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa: í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð, parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar og útgengi á svalir sem snúa í suð-austur.
Eldhús: með ljósri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, góðu borðplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með innréttingu og efri skápum með speglum, sturtu, handklæðaofn og flísum á gólfi.

Efri hæð:
Hjónasvíta: 29,8 fm hjónasvíta með mikilli lofthæð, fataherbergi og baðherbergi með sturtu og flísum á gólfi.
Vinnurými: vinnurými(stigapallur) fyrir framan hjónasvítuna með parketi á gólfi.

Bílastæði: sérbílastæði í bílageymslu merkt 404. Vel staðsett í bílakjallara, rétt hjá inngangi í stigagang og lyftu. 
Geymsla: 11,9 fm sérgeymsla í kjallara.
Hjóla - og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.

Hússjóður: 22.849 kr.

Nánari upplýsingar veita:
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/11/201745.250.000 kr.55.900.000 kr.131.5 m2425.095 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
Byggt 2016
Fasteignanúmer
2355005
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
45
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.220.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarás 17
 06. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Skógarás 17
Skógarás 17
110 Reykjavík
147 m2
Fjölbýlishús
624
598 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 4
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Naustabryggja 4
Naustabryggja 4
110 Reykjavík
135.5 m2
Fjölbýlishús
413
649 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Reykás 23
Skoða eignina Reykás 23
Reykás 23
110 Reykjavík
135 m2
Fjölbýlishús
615
621 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1B íb407
Grensásvegur 1B íb407
108 Reykjavík
93.5 m2
Fjölbýlishús
312
903 þ.kr./m2
84.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache