Fasteignaleitin
Opið hús:08. sept. kl 16:00-17:00
Skráð 4. sept. 2026

Víðilundur 21

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
134.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
710.897 kr./m2
Fasteignamat
86.400.000 kr.
Brunabótamat
77.750.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1988
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2151649
Landnúmer
149718
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir, móða á einhverjum glerjum
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
25
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Hvammur 466 1600  kaupa@kaupa.is  

Víðilundur 21 -  falleg 3ja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með bílskúr - samtals 134,9 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, búr, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, vinnuherbergi og bílskúr auk geymslulofts yfir bílskúr og þvottahús innaf bílskúr.


Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápar eru á gangi innan við forstofu.
Eldhús er með korkflísum á gólfi og ljósri sprautulakkaðri innrétttingu með flísum á milli skápa. Búr er innaf eldhúsi og þar eru korkflísar á gólfi, innrétting hillur og opnanlegur gluggi.  Búrinu er lokað með rennihurð. 
Stofan er rúmgóð og björt og þar er parket á gólfi og upptekin loft.  Úr stofu er farið út á hellulagða verönd.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og í báðum eru góðir fataskápar.
Baðherbergi er flíslagt í hólf og gólf, sprautulökkuð innrétting og sturta með gleri.  Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Vinnuherbergi/rými er á milli bílskúrs og íbúðar og þar er parket á gólfi og gluggi til norðurs.
Bílskúr er með flísum á gólfi og rafdrifinni innkeyrsluhurð með gönguhurð við hliðina.  Innaf bílskúr er þvottahús með ljósri innréttingu og skápum.  Útgengt er til suðurs út á verönd úr bílskúr.
Lóðin er snyrtileg.  Norðan við húsið er hellulögð stétt, bílaplan og aðkoma að forstofu með snjóbræðslu í.  Þar eru einnig gróðurbeð og sorptunnuskýli.  Sunnan við húsið er rúmgóð hellulögð verönd sem á er gróðurhús.  Veröndin er lokuð af með skjólgirðingu og þar fyrir utan er grasflöt umkring runnum.  Geymsluskúr á lóð fylgir ekki með við sölu.

Annað:
- Eldhúsinnrétting og baðinnrétting er nýlega sprautulakkaðar og skipt hefur verið um höldur, lamir og skúffubrautir.  Skápum var skipt út fyrir skúffur 2021-2022.
- Nöglum var skipt út fyrir skrúfur í þaki 2025.
- Íbúðin er mjög vel um gengin og lítið slit í innréttingum og gólfefnum.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Íbúðin verður laus til afhendingar 15. nóvember.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/08/202146.950.000 kr.64.200.000 kr.134.9 m2475.908 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin 1 - 103
Opið hús:06. sept. kl 13:00-13:30
1.jpg
Vesturvin 1 - 103
101 Reykjavík
126.4 m2
Fjölbýlishús
312
943 þ.kr./m2
119.200.000 kr.
Skoða eignina Strikið 4
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 18:15-19:00
Skoða eignina Strikið 4
Strikið 4
210 Garðabær
110.6 m2
Fjölbýlishús
31
948 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Núpasíða 6b
Á einni hæð
Opið hús:09. sept. kl 16:15-17:00
Skoða eignina Núpasíða 6b
Núpasíða 6b
603 Akureyri
89.8 m2
Raðhús
312
756 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Bílskúr
Á einni hæð
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113.5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin