Fasteignaleitin
Opið hús:05. sept. kl 12:30-13:00
Skráð 1. sept. 2026

Smyrilshólar 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
84.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
743.499 kr./m2
Brunabótamat
45.050.000 kr.
Byggt 1979
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20498391
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Mjög vel skipulögð og falleg 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð (efstu hæð) í góðu fjölbýlishúsi við Smyrilshóla 6, 111 Reykjavík. Sumarið 2023 var þakjárn og pappi endurnýjaður ásamt þakrennum. Sumarið 2019 var húsið múrviðgert og málað. Íbúðin er hefur verið endurnýjuð að innan t.a.m hafa gluggar og gler að mestu verið endurnýjaðir, ofnar endurnýjaðir árið 2025 og einni hafa rafmagnstenglar verið endurnýjaðir. Fyrir nokkrum árum síðan var eldhúsið endurnýjað ásamt gólfefnum. Næg bílstæði og leikvöllur aftan við húsið.

Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 79,9 fm, merkt: 03-02, geymslan er skráð 4,7 fm, merkt: 00-03, samtals: 84.6 fm.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu. Fallegt eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, borðkrókur. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á suðursvalir. Parketlagður svefnherbergisgangur og þar eru tvö svefnherbergi og eru þau bæði með parketi á gólfi. Fataskápur í öðru herberginu. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, eikarinnrétting, baðkar, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgangi að sameiginlegri- hjóla og vagnageymslu. Gófefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jörfabakki 28
Skoða eignina Jörfabakki 28
Jörfabakki 28
109 Reykjavík
69.5 m2
Fjölbýlishús
211
747 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Súluhólar 6
Skoða eignina Súluhólar 6
Súluhólar 6
111 Reykjavík
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
724 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Gaukshólar 2
Opið hús:03. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Gaukshólar 2
Gaukshólar 2
111 Reykjavík
58.7 m2
Fjölbýlishús
211
884 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 16
Á einni hæð
Skoða eignina Njörvasund 16
Njörvasund 16
104 Reykjavík
71.8 m2
Fjölbýlishús
312
999 þ.kr./m2
71.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin