Fasteignaleitin
Opið hús:19. júlí kl 16:00-16:30
Skráð 13. júlí 2026

Urriðaholtsstræti 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
90.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
910.596 kr./m2
Fasteignamat
81.500.000 kr.
Brunabótamat
64.710.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2504929
Landnúmer
224775
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Urriðaholtsstræti 28 Garðabæ - Frábærlega skipulögð 3ja herb. íbúð með suðursvölum, þvottaherbergi og sérstæði í lokuðum bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja 90,6 fermetra íbúð á 4. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Urriðaholtsstræti 28 í Garðabæ. Íbúðin er með rúmgóðum svölum til suðurs og sérbílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla sem er 5,2 fermetrar að stærð. Vandað hús byggt af Þarfaþingi með fallegum innréttingum frá GKS.

Húsið er afar fallegt byggt árið 2019, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar fyrir framan hús. Sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Urriðaholti Garðabæ. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni um Heiðmörk, Urriðavatn og víðar. 

Lýsing eignar:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá GKS. Stál bakaraofn, spanhelluborð og falleg vifta. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Innfelld lýsing í loftum og lýsing undir efri skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs (gólfsíðir við svalahurð) og útgengi á svalir. Innfeld lýsing í loftum að hluta.
Svalir: Eru rúmgóðar með svalahandriði og snúa til suðurs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Gengið inn í fataherbergi frá hjónaherbergi.
Fataherbergi: Með harðparketi á gólfi og góðum innréttingum.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask og speglaskápur. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottaherbergi er staðsett inn af baðherbergi (sér rými með rennihurð).

Bílastæði: Er vel staðsett í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Afar snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir bílhleðslustöðvar.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett á jarðhæð sem er 5,2 fermetrar að stærð.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt álklætt hús byggt af Þarfaþing. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/01/202472.700.000 kr.73.000.000 kr.90.6 m2805.739 kr.
25/08/202362.200.000 kr.74.900.000 kr.90.6 m2826.710 kr.
30/07/20194.020.000 kr.50.400.000 kr.90.6 m2556.291 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2504929
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B-
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.510.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
95.4 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Selvað 3
Bílastæði
Skoða eignina Selvað 3
Selvað 3
110 Reykjavík
88.1 m2
Fjölbýlishús
211
793 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
153.7 m2
Fjölbýlishús
413
1073 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin