Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á 7. hæð miðsvæðis í Reykjavík í góðu lyftuhúsi að Ljósheimum 20. Fallegt útsýni til suð-austurs yfir borgina til fjalla. Stutt í alla þjónustu og útivist, íþróttasvæði og sundlaug í Laugardal. Flott fyrstu kaup eða sem fjárfesting.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 52,9 fm og þar af er geymsla 2,8 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með fatahengi og skó hillum. Parket á gólfi. Skápur í holi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á suð-austur svalir með fallegu útsýni.
Eldhús með fallegri innréttingu, parket á gólfi. Fallegt útsýni.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, sturtu, upphengdu salerni, flísalagt í hólf og gólf og með glugga.
Sameiginlegt þvottahús með 2 þvottavélum og einum þurrkara í sameign á jarðhæð og góð þurrkaðstaða.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Sérgeymsla íbúðar á geymslugangi á jarðhæð.
Endurbætur á íbúð á liðnum árum:2016: Parket endurnýjað
2018: Nýjir efri skápar, borðplata, vaskur og blöndunartæki í eldhúsi
2024: Innrétting á baðherbergi, vaskur, blöndunartæki og sturta endurnýjað
Endurbætur á sameign:2020: ýmsir gluggar á austur og norður hlið húss, auk nokkurra glugga og svalahurða í sameign. endurnýjun skráa í sameign.
2021: Snjóbræðsla í gangstétt fyrir framan hús, skipt um hurðapumpur og gorma í lyftu á öllum hæðum. skipt var um ónýta glugga í lyftuhúsi
2022: settur upp sjálfvirkur búnaður á hurðir frá anddyri inn í þvottahús og tvo geymsluganga.stigagangur málaður og teppalagður,hitakerfi endurstillt, lyftuhús málað og viðgert.
2023: Gólfdúkur í þurrkherbergi, samningur gerður við Ísorku um hleðslustöð fyrir tvo rafbíla á bílastæði, LED lýsing sett upp í þvottahúsi og klósetti. Samtengdur reykskynjarabúnaður endurnýjaður fyrir alla sameign, þvottavél í sameign endurnýjuð,
2024: Loftræstikerfi í C,D,og E íbúðum hreinsað, ( aðrar íbúðir ekki með slíkt ) bílastæði við hús máluð, skipt var um þakplötur á hluta þaksins, sigti hreinsuð í öllum hreinlætstækjum allra íbúða og hitastillingar yfirfarnar.
2025: Skólp og vatnslagnir A íbúða endurnýjað, kaldavatnsdæla í kyndiklefa,
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is