Elka s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynnir til sölu landspilduna Engjalæk 2 í Hvalfjarðarsveit.7,3 hektara óbyggðan landskika með ýmis möguleikum. Landið er gróið og afgirt í fallegu umhverfi.
Nálægðin við bæði Akranes og Borgarnes gerir staðsetninguna einstaklega hentuga. Þar er gott að njóta sveitasælunnar með verslanir og þjónustu í báðar áttir.
Möguleiki er að kaupa aðliggjandi spildur og stækka þar með landið.
Skráð stærð landsins er 73.000 m² (7,3 hektarar).
Fasteignanúmer er F2544683 og landeignanúmer er L242124.Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.