Kristján og Knútur hjá Helgafell fasteignasölu kynna:BUGÐUFLJÓT 15, 270 MOSFELLSBÆ. Nýtt atvinnuhúsnæði
Endabil til suðurs merkt 0101.
Birt stærð er 160,5 fm., þar af er samþykkt milliloft 59,9 fm.Bilin verða afhent í byrjun júní, fullbúin skv. skilalýsingu seljanda á byggingarstigi 7.
Vandað atvinnuhúsnæði með stóru athafnasvæði.
ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENTLýsing eignar: Húsið við BUGÐUFLJÓT 15 samanstendur af 16 iðnaðarbilum. Birt flatarmál þess er 2.603,9 fm. og stendur það á 6.108 fm.iðnaðarlóð.
Byggingarár er 2023.
Lofthæð frá tæpum 5 metrum upp í tæpa 10 metra þar sem hún er hæst.
4,3 m. há innkeyrsluhurð.
Timburstigi með handriði milli hæða.
Húsið er límtréshús frá LímtréVírnet ehf., klætt steinullar-yleiningum. Húsið verður fullfrágengið við afhendingu.
Bílaplan verður malbikað með niðurföllum, olíuskiljum og sorpaðstöðu.
Húsið er byggt á steinsteyptum undirstoðum. Gólf er steinsteypt með epoxý (Vespox EW-V) yfirlagi. Burðarvirki veggja og þaks er límtré.
Gluggar og hurðir í útveggjum eru úr plasti í hvítum lit.
Hvert bil afhendist með baðherbergi og ræstivaski.
Aðgengi og lóð: Við húsið eru 48 bílastæði. Þrjú bílastæði tilheyra hverju bili. Auk þess tilheyrir hverju bili svæði út að lóðamörkum að fráskildri gegnumkeyrslu.
Hvert bil hefur því ca. 100 – 200 fm. útisvæði ásamt góðu sameiginlegu svæði. Útilýsing verður beint niður á nálægt svæði.
Mjög góð staðsetning í Mosfellsbæ í ört vaxandi hverfi.
Gatnagerðargjöld eru greidd af seljanda.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, sem er 0,3% af verðandi brunabótamati eignar og innheimt við endanlegt brunabótamat hennar.
Áhvílandi er á eigninni vsk. kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.SÝNUM SAMDÆGURSNánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is