Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Hulduhól 41 á Eyrarbakka, nýlegt 5-6 herbergja bjart og fallegt parhús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr, tveimur pöllum með skjólgirðingu og heitum potti á suður pallinum, fullfrágengin lóð og steyptu bílaplani með hitalögn (sem á eftir að tengja).
Húsið er samtals 163,0 fm parhús byggt 2019 sem skiptist í íbúðarrými 137,7 fm og bílskúr 25,3 fm. Húsið er klætt með álklæðningu svo það er mjög viðhaldslétt.
Samkvæmt teikningu þá skiptist húsið í forstofu, eldhús/borðstofu/stofu í alrými með rennihurð út á pall úr borðstofu og gönguhurð út á suður pall úr stofu, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, baðherbergi með gönguhurð út á suður pall, þvottahús þar sem gegnið er inn í bílskúr, bílskúr og geymslu inn af sem hægt er að nýta sem herbergi með gönguhurð út á suður pall. Gólfhiti í öllu húsinu með hitastýringum. Ljósgráar 60*60 flísar á gólfum en epoxý á gólfi í bílskúr og geymslu.Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isMyndband má sjá "hér"https://vimeo.com/979186040
NÁNARI LÝSING:Forstofa: með gráum flísum og hvítum fataskápur.
Eldhús/borðstofa/stofa: í björtu alrými með hvítri L-laga höldulausri innréttingu, innbyggðum ísskáp, tegni fyrir uppþvottavél, spanhelluborði og tveimur bakaraofnum. Grá borðplata á borðum. Úr borðstofu er rennihurð út á pall. Stofan er með stórum gluggum og útgönguhurð út á pall í suður.
Sjónvarpshol: rúmgott sjónvarpshol.
Hjónaherbergi: bjart og rúmgott.
Svefnherbergi #2: með þreföldum hvítum háglans skápum. Þetta herbergi er nýtt sem fataherbergi.
Svefnherbergi #3: með tvöföldum hvítum háglans skápum.
Svefnherbergi #4: með flísum á gólfi.
Baðherbergið: með gráum flísum á gólfi og á hluta á veggjum. Walk in sturta með sturtugleri. Innrétting með handlaug ofan á borði. Upphengt salerni handklæðaofn og útgönguhurð út á suður pall
Þvottahús: með mjög góðri hvítri innréttingu með góðu borðplássi. Innangengt inn í bílskúr.
Bílskúr: með epoxý á gólfi, innkeyrsluhurð sem er líka með gönguhurð,
Geymsla: góð ca 12 fm geymsla inn af bílskúr sem hægt er að nýta sem herbergi, epoxý á gólfi, góðir gluggar og útgönguhurð út á pall.
Niðurlag:Frábært fjölskylduhús á fallegum stað á Eyrarbakka.
Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.