Fasteignaleitin
Opið hús:05. okt. kl 17:30-18:00
Skráð 30. sept. 2026

Kinnargata 43

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
119.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
922.754 kr./m2
Fasteignamat
93.350.000 kr.
Brunabótamat
87.160.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
3. hæð af 2
Garður
Svalir
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2520103
Landnúmer
228357
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
síðan húsið var byggt
Þak
síðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestur svalir útsýni
Inngangur
Sérinngangur
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Glæsileg 4ra herbergja (2 x svefnherbergi + 2 stofur) íbúð með sérinngangi og stæði í bílakjallara á útsýnislóð í suðurhlíð Urriðaholtsins. Íbúðin nær í gengu húsið og er því sérlega björt og opin. Húsið er einstaklega fallegt og vandað nýlegt fjölbýlishús þar sem allar íbúðir eru með sérinngang af hálflokuðum stigagangi. Einstakt útsýni er frá íbúðinni yfir Golfklúbb Oddsins til austurs, heiðmörkina til suðurs og Urriðakotsvatnið og út á sjó til vesturs. Íbúðin skiptist í: forstofu, sjónvarpshol, gott alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, baðherbergi, sér þvottaherbergi, tvö svefnherbergi, fataherbergi, geymslu og stæði í bílakjallara. Lofthæð innan íbúðar er 2,75 m. 
Húsið er á þremur hæðum en aðal aðkoma að húsinu og bílastæðin liggja við 2.hæðina og aðeins er gengið upp eina hæð upp að íbúðinni. Gengið er niður eina hæð að bílageymslu hússins frá aðalinnganginum. Einnig er hægt að koma að húsinu á bakhlið þess við Hraungötu, einnig eru þar bílastæði og inngangur inn í húsið. Innréttingar og gólfefni eru vönduð, stílhrein og falleg. 
Örstutt göngufæri er í grunnskóla, leikskóla og á golfvöllinn hjá Golfklúbbinum Oddur. 


Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er upp eina hæð frá aðalinngangi hússins að íbúðinni. Stigahús er innbyggt og skjólgott með glerlokun að hluta til að skýla fyrir veðri og vindum. Inngangur flokkast sem utanáliggjandi og er því sérinngangur inn í allar íbúðir hússins. 
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang inn í góða forstofu með vönduðu harðparket á gólfi, fataskáp sem er innfeldur og nær upp i loft.
Sjónvarpshol: Þegar komið er inn úr forstofunni er gott sjónvarpshol beint á móti með harðparketi á gólfi. 
Alrými: Eldhús, borðstofa, setustofa. um 62 m2
Eldhús: 
Eldhúsið er með fallegri vandaðri innréttingu í dökkum matt gráum lit frá Voke III. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr ljósum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Innrétting með efri og neðri skápum eru á einn vegg á móts við góða eldunareyju sem stúkar eldhúsið af frá borðsofu rýminu. Eldhústæki eru frá Electrolux að undanskildum háf sem eru af gerðinni Elica. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Lýsing er við vaskaborðið undir efri skápum.
Borðstofa + setustofa: Gott stofurými er fyrir framan eldhúsð með vönduðu harðparketi á gólfi. Glæsilegt útsýni er frá stofunni. Gengið er út á stórar suðvestur svalir frá stofunni sem ná útsýni til austurs, suðurs og vesturs með mikilli víðsýni til allra átta (yfir á golfvöll Oddsins, heiðmörkina, Urriðakotsvatn og vestur út á sjó). Svalirnar eru með skyggðu gleri í svalahanddriðinu.
Baðherbergi: Baðherbergið er með fallegum gráum flísum 60x60cm að stærð á gólfi og á hluta af veggjum. Sturta með góðu aðgengi og glervegg er beint á gólf. Innréttingin er frá Voke III,  með matt gráum framhliðum og ljósri Quarts stein borðplötu. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vaskaborðið. Upphengt salerni og handklæðaofn. 
Þvottahús: : Þvottaherbergið er í sér rými með góðri innréttingu undir þvottavél og þurrkara sem eru í vinnuhæð með skúffum undir og hillum fyrir ofan. Innréttingin er einnig frá Voke III í matt gráum lit.
Hjónaherbergi + fataherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með vönduðu harðparketi á gólfi. Fyrir innan hjónaherbergið er fallega innréttað fataherbergi með vönduðuðm innréttingum frá VOKE III og opnanlegum glugga.
Barnaherbergi: Barnaherbergið er með vönduðu harðparketi á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft. 
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign, .
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði: sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er vel staðsett í litlum 8 bíla bílakjallara.  

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/08/202483.350.000 kr.96.000.000 kr.119.1 m2806.045 kr.Já
16/11/202259.550.000 kr.91.000.000 kr.119.1 m2764.063 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2022
Fasteignanúmer
2520103
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.860.000 kr.

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 10 íb201
Opið hús:03. okt. kl 14:00-14:30
Eskiás 10 íb201
210 Garðabær
112.2 m2
Fjölbýlishús
43
935 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb104
Opið hús:03. okt. kl 14:00-14:30
Eskiás 10 íb104
210 Garðabær
115.9 m2
Fjölbýlishús
43
905 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Strikið 8
Bílastæði
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Strikið 8
Strikið 8
210 Garðabær
119 m2
Fjölbýlishús
312
924 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lautargata 2
Lautargata 2
210 Garðabær
112 m2
Fjölbýlishús
312
1018 þ.kr./m2
114.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin