Bakkatröð 12 - Glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja raðhúsaíbúð með bílskúr á einni hæð í Eyjafjarðarsveit - stærð 142,0 m²
* Eignin er steypt og með steyptu þaki.
* Hiti er í öllum gólfum.
* Hitalagnir, lokað kerfi er í öllum steyptum stéttum og bílalplani.
* Hljóðdempandi plötur eru í öllum loftum fyrir utan baðherbergi og bílskúr.
* Innfelld led lýsing er í íbúðinni.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, þvottahús, snyrtingu og bílskúr.
Forstofa er með vínyl parketi á gólfi, tvöföldum hvítum skáp og svörtum skóskáp.
Eldhús, falleg hvít innrétting með dökkri bekkplötu, gott skápa- og bekkjarpláss. Uppþvottavél er innfelld og fylgja með við sölu eignar. Helluborð með viftu. Úr eldhúsi er gengið út á steypta suður verönd.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, með vínyl parketi á gólfi, innfelldri lýsingu í lofti og gluggum til norður og suðurs. Úr stofu er gengið út á steypta verönd til norðurs.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með vínyl parketi á gólfi, hvítum fataskápum og innfelldri lýsingu í loftum. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,7 , 10 og 13,1 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, upphengdu wc, sturtu og hurð út á suður verönd þar sem er heitur pottur.
Lítil snyrting er inn af þvottahúsinu, með vínyl parketi á gólfi, hvítri innréttingu og upphengdu wc.
Þvottahús er með vínyl parketi á gólfi og hvítri innréttingu með skolvask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr.
Geymsla er með vínyl parketi á gólfi og innfelldri lýsingu.
Bílskúr er með epoxy efni á gólfi, rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Loft er tekið upp. Búið er að setja upp smá geymsluhillu og vinnuborð.
Annað
- Steyptar verandir eru beggja megin við húsið og heitur pottur er á suður veröndinni.
- Stýring fyrir heitapottinn er staðsett í bílskúrnum.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Örstutt í leik- og grunnskóla og sund.
- Eignin er laus til afhendingar í júlí 2025.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.