Um er að ræða fallegt og snyrtilegt 90,0 fm. raðhús ásamt 25,6 fm. bílskúr, samtals 115,6 fm. Húsið er byggt úr timbri árið 2016 og er klætt að utan með hvítri báruklæðningu og litað járn er einnig á þaki. Að innan er íbúðin tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og anddyri. Flísar eru á gólfum í anddyri, baði og þvottahúsi en harðparket á öðrum gólfum. Í eldhúsinu er hvít innrétting. Á baði er lítil hvít innrétting, walk in sturta, handklæðaofn og upphengt wc. Fataskápar eru í hjónaherbergi og anddyri. Hvít innrétting er í þvottahúsi og tækin þar eru í vinnuhæð. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsinu. Úr stofunni er útgengt á timburverönd bakatil við húsið. Bílskúrinn er fullmálaður. Innkeyrsluhurðin er álflekahurð. Geymsla er afstúkuð í enda bílskúrsins og útgengt er úr henni á baklóðina. Innkeyrsla er hellulögð sem og stétt að útidyrum. Timburverönd er á baklóð. Á baklóðinni er geymsluskúr sem er einangraður og klæddur. Lóðin er frágegnin.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
25/02/2016
2.850.000 kr.
22.000.000 kr.
115.6 m2
190.311 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.