Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2025

Hamravík 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
124.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
699.115 kr./m2
Fasteignamat
82.500.000 kr.
Brunabótamat
59.850.000 kr.
Mynd af Marta Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Lögfræðingur
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2251991
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott. Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað eftir þörfum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestur svalir
Upphitun
Gott
Inngangur
Sérinngangur
Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Hamravík 28, 112 Reykjavík. 

**Eignin er seld með fyrirvara**

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á efstu hæð á fallegum stað í Víkurhverfinu í Grafarvoginum. Íbúðin er afar falleg og vel með farin.
Húsið er byggt 2001 og er íbúðin skráð 124,3 fermetrar. Hún skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, rúmgott þvottahús/geymslu, þrjú stór svefnherbergi (þar af eitt forstofuherbergi) og sér 8,3 fermetra geymslu á jarðhæð. Næg bílastæði eru framan við húsið. 
 
Nánari lýsing:

Gengið er inn um sér inngang í forstofu sem er með stórum fataskáp sem nær til lofts, nýlegt teppi er á gólfi. Inn af forstofu er svefnherbergi með hvítum fataskáp til lofts og parketi á gólfi. Gengið er úr forstofu í opið alrými íbúðarinnar. Á hægri hönd eru tvö svefnherbergi, annað stærra en bæði með parketi á gólfi og stórum hvítum fataskápum sem ná til lofts. Öll svefnherbergi snúa til norð-austurs og eru með fallegu útsýni til fjalla. Við hlið svefnherbergjanna er baðherbergi með ljósum flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðkari með sturtu, og fallegri dökkri viðarlitaðri innréttingu með nýlegri ljósri borðplötu, innfelldum vaski og stórum spegli með baklýsingu. Í alrýminu er eldhúsið stúkað af með vegg og opið sitthvoru megin. Dökk viðarlituð innrétting er í eldhúsi með nýlegum ljósum borðplötum, innfelldum vaski og nýlegum eldhústækjum og blöndunartæki. Flísar eru á gólfi sem ná inn í borðstofu. Við hlið eldhússins er gengið inn í rúmgott þvottahús með vaski sem nýtist einnig sem geymsla. Ljósar flísar eru á gólfi. Stofan er stór og björt, og útgengt er á rúmgóðar og sólríkar svalir sem snúa í suð-vestur.
 
Á jarðhæð eru sérgeymslur íbúða og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Stór sameiginlegur garður er á baklóðinni sem er vel við haldinn. Nóg er af bílastæðum að framanverðu og búið er að setja upp fjölda rafhleðslustöðva fyrir íbúa húsanna við Hamravík 22-28.

Húsið er innst í botnlanga  og er því vel staðsett í Víkurhverfinu en hverfið er rólegt og fjölskylduvænt. Frá íbúðinni er afar gott útsýni til fjalla.
Í nærumhverfi eignarinnar er leikskóli og grunnskóli, golfvöllur, og falleg göngu- og hjólasvæði.
 
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/09/201529.850.000 kr.33.500.000 kr.124.3 m2269.509 kr.
18/08/201024.700.000 kr.24.000.000 kr.124.3 m2193.081 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 19 (602)
Bílastæði
Hringhamar 19 (602)
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 17 (201)
Hringhamar 17 (201)
221 Hafnarfjörður
58.8 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 17 (301)
Hringhamar 17 (301)
221 Hafnarfjörður
58.4 m2
Fjölbýlishús
211
1009 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 13-15 íb. 307
Bílastæði
Hringhamar 13-15 íb. 307
221 Hafnarfjörður
95.9 m2
Fjölbýlishús
312
781 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin