Fasteignaleitin
Skráð 2. des. 2025
Deila eign
Deila

Smiðjuvellir 118

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær-230
43.4 m2
Verð
22.000.000 kr.
Fermetraverð
506.912 kr./m2
Fasteignamat
6.430.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
JM
Júlíus M Steinþórsson
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2090452
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Matsstig
4 - Fokheld bygging
eignasala.is kynnir eignina Smiðjuvellir 118, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-0452 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Smiðjuvellir 118 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-0452, birt stærð 43.4 fm.
Eignasala.is kynnir eignina Smiðjuvellir 118, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-0452 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari lýsing
Á lóðinni eru fjórir matshlutar, hver með mismunandi fjölda geymslubilja.
Stærð hvers bils í matshlutum 01 og 02 er um 43 m².

Byggingarnar eru reist á staðsteyptum sökkli, með límtrésburðarvirki sem stendur á staðsteyptum undirstöðum.
Ytra byrði húsanna er klætt dökkgráum yleiningum með steinullarkjarna.
Hver matshluti er með einkennislit í flassningum; í þessum matshluta er liturinn blár.

Húsfélag hefur verið stofnað og annast það rekstur sameiginlegrar lóðar, öryggiskerfis og viðhald sameigna.

Burðarvirki
Sökklar og botnplata: Járnbent steinsteypa.
Útveggir: Límtrésburðarvirki þar sem við á. Yleiningar með steinullarkjarna, gerð ST 105. Dökkgráar að utan og hvítar að innan.
Þakvirki: Límtrésburðarvirki þar sem við á. Yleiningar með steinullarkjarna, gerð ST 175, með trapísulaga þakklæðningu. Dökkgráar að utan og hvítar að innan.

Frágangur utanhúss
Útveggir: Yleiningar með steinullarkjarna (ST 105), dökkgráar að utan, hvítar að innan.
Allar áfellur eru með innbrenndum lit, og hver matshluti hefur sinn einkennislit.
Þak: Yleiningar með steinullarkjarna (ST 175), trapísulaga þakklæðning, dökkgrá að utan, hvít að innan.
Raflagnir: Utanhússlýsing er fullfrágengin með LED-ljósum, stýrt með sólúri í aðaltöflu.

Lagnir:
Inntök og mælagrindur eru sameiginleg í sér rýmum fyrir hvern matshluta.
Aðskilin inntaksrými fyrir rafmagn og heitt/kalt neysluvatn.
Blinduð tengi fyrir neysluvatn í hverju bili.
Upphitun með hitaveituofnum, sameiginleg hitaveita fyrir hvern matshluta.
Niðurfall í gólfum allra bilja.
Varmaskiptir við inntak heita vatnsins.
Lagnir afhentar tilbúnar fyrir tengingu salernisaðstöðu.
Gluggar og útihurðir: Álgluggar og hurðir með K-gleri, litur dökkgrár.
Iðnaðarhurðir: 3,1 m breiðar x 3,0 m háar, án mótors, litur dökkgrár.

Frágangur innanhúss
Gólf: Slípuð, járnbent og einangruð steinsteypa.
Veggir: Yleiningar með steinullarfyllingu, hvítar að lit.

Raflagnir:
Greinatafla við gönguhurð.
Vinnuljós og rofi í hverju bili.
Loftræstingu má virkja með ljósarofa.
Tvöfaldur tengill í töflu og þriggja fasa tengill neðan hennar.
Útiljós fyrir ofan gönguhurð.

Lagnir:
Blinduð tengi fyrir neysluvatn í hverju bili, upphituð með hitaveituofnum.
Niðurfall í gólfi við innkeyrsluhurð.
Sameiginleg hitaveita fyrir öll rými.
Húsið hitað með hefðbundnu ofnakerfi.
Varmaskiptir við inntak heita vatnsins.
Lagnir afhentar tilbúnar fyrir salernisaðstöðu.

Frágangur lóðar
Lóð:
Bílastæði fullfrágengin með malbikslögn.
Sorptunnugerði innan lóðar.
Lóð afgirt með galvaniseraðri öryggisgirðingu með innbrenndum lit.
Fjarstýrt innkeyrsluhlið sem hindrar aðgang óviðkomandi.
Þrjú læsanleg gönguhlið á girðingu.
Myndavélakerfi rekið af húsfélagi, í sameign allra eigenda á svæðinu.
Frekari upplýsingar veitir skrifstofa Eignasölu á Hafnargötu 90a.
Sími: 420 6070
Netfang: julli@eignasala.is og joi@eignasala.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/07/202127.150.000 kr.85.000.000 kr.217.7 m2390.445 kr.
11/03/201616.050.000 kr.26.000.000 kr.217.7 m2119.430 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smiðjuvellir 130
Smiðjuvellir 130
230 Reykjanesbær
42.9 m2
Atvinnuhúsn.
510 þ.kr./m2
21.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjuvellir 146
Smiðjuvellir 146
230 Reykjanesbær
42.9 m2
Atvinnuhúsn.
510 þ.kr./m2
21.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjuvellir 126
Smiðjuvellir 126
230 Reykjanesbær
42.9 m2
Atvinnuhúsn.
510 þ.kr./m2
21.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjuvellir 120
Smiðjuvellir 120
230 Reykjanesbær
42.9 m2
Atvinnuhúsn.
510 þ.kr./m2
21.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin