Nýtt Heimili fasteignasala og leigumiðlun kynnir:
EIGNIN ER SELD MEÐ HEFÐBUNDNUM FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN!
Falleg og björt 5 herbergja ibúð í tvíbýli með bílskúr á þessum góða stað við lækinn. - Stutt í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu. - Íbúðin er skráð 121,5 fm og bílskúrinn er 23,9 fm, alls 145,4 fm.
FÁ SÖLUYFIRLIT STRAX HÉR:
Nánari lýsing:
Komið inn í anddyri, lítið fatahengi. Flísar á gólfi.
Stór stofa, borðstofa og hol í sama rými.
Eldhús með ljósri innréttingu, ofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél.
Gott hjónaherbergi með fínum skápum.
Baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu, eldri innrétting. Flísalagt gólf og veggir.
Við hlið baðherbergis er gott þvottahús.
Þrjú barnaherbergi, þar af eitt með útgangi út á svalir. Svalirnar voru endurnýjaðar fyrir nokkrum árum og eru úr timbri. Möguleiki á að setja hringstiga niður í sameiginlegan garð.
Gólfefni er nýlegt vinylparket á stofum, eldhúsi og einu svefnherbergi. Annars staðar plastparket.
Lítið geymsluskot er undir tröppum efri hæðar.
Bílskúrinn er 23,9 fm og er með rafknúnum bílskúrshurðaropnara.
Fyrirhugað fasteignamat 2024: 84.350.000,-
Stutt í helstu stofnæðar - Stutt í miðbæinn - Eign í fallegu umhverfi með lækinn í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir Gyða Gerðarsdóttir, lögg. fasteignasali & leigumiðlari í s. 695-1095. gyda@nyttheimili.is
Nýtt Heimili - Fasteignasala og leigumiðlun - Sími 414-6600.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér og pantaðu frítt sölumat.
Líka á facebook - Smelltu hér / NyttHeimili.