Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2026

Háteigur 54

Nýbygging • RaðhúsSuðurnes/Garður-250
106.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
64.000.000 kr.
Fermetraverð
598.690 kr./m2
Fasteignanúmer
2539096
Húsgerð
Raðhús

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Nýtt og glæsilegt 106,9 fm raðhús á einni hæð við Háteig 54 í Garði í 250, Suðurnesjabæ. Vel skipulögð eign með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu, rúmgóðri stofu og borðstofu í björtu og opnu alrými ásamt eldhúsi með vandaðri innréttingu frá HTH og tækjum frá AEG. Gólfhiti er í öllum rýmum. Lóðin skilast með tyrfingu, timburklæddum sólpalli, hellulagðri stétt og malbikuðu bílaplani með snjóbræðslukerfi. Stutt í leik- og grunnskóla, íþróttamiðstöðina í Garði, Golfklúbb Sandgerðis og Gólfklúbbinn Hólmsvöll í leiru.

Nánari lýsing:
Eldhús
er parketlagt með innréttingum frá HTH og eldhússtækjum frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð.   
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og sturtu með glerskilrúmi. Innréttingar frá HTH og Grohe blöndunartæki. Tengi fyrir þvottavél og þurkara.
Geymsla er 6 fermetrar og flísalögð.
Svefnherbergi eru tvö, rúmgóð með innbyggðum fataskápum frá HTH.
Lóð skilast snyrtilega frágengin með tyrfingu, malbikuðu bílaplani og hellulagðri stétt með snjóbræðslukerfi. Sólpallur er timburklæddur og sorpskýli steypt. Gert er ráð fyrir rafmagns-ídráttarröri fyrir rafbílahleðslu. Þak er byggt úr kraftsperrum klætt með aluzink þakklæðningu. Útveggir eru hefðbundnir timburveggir klæddir að utan með lóðréttri bandsagaðri timburklæðningu. 

Nánari upplýsingar veitir Tinna Bergmann Halldórsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 869 3675, tölvupóstur tinna@stofnfasteignasala.is.

Byggingaraðili er Sparri ehf. Raðhúsalengan við Háteig 50-56 telur fjórar íbúður með sérinngöngum og timburverönd. Íbúðir eru 106,9–122,4 m². Allar íbúðir afhendast fullbúnar að innan sem utan með gólfefnum og timburklæddum sólpalli.

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. 
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/06/202653.750.000 kr.64.140.000 kr.106.9 m2600.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFN Fasteignasala ehf.
stofnfasteignasala.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hvammstangabraut 35
Bílskúr
Hvammstangabraut 35
530 Hvammstangi
242.2 m2
Einbýlishús
424
281 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.604
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.604
221 Hafnarfjörður
82.1 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.601
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.601
221 Hafnarfjörður
80.6 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin