Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir í einkasölu:
Nýjar og glæsilegar 3-4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi að Lautargötu 4 í Urriðaholti. Stærðir frá 88,9 fm – 133,4 fm.
Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum, ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innbyggð sturtutæki. Steinborðplötur á eldhúsi og baðherbergjum. Sér þvottahús í öllum íbúðum. Stæði í bílageymslu með flestum íbúðum.
// BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ ÞORSTEINI Í SÍMA 696-0226 //
Íbúð 305: Glæsileg 4. herbergja endaíbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílakjallara. Skráð stærð 132,8 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur upp í loft.
Herbergi: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innbyggð blöndunartæki, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.
Þvottahús: Inn af baðherbergi. Flísar á gólfi, innrétting með skolvask.
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, steinborðplata, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, combi bakaraofn og spanhelluborð. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi.
Fataherbergi: Inn af hjónaherbergi. Parket á gólfi og fataskápar báðu megin.
Baðherbergi: Inn af fataherbergi. Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innbyggð blöndunartæki, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.
Geymsla: í sameign.
Helstu kostir við frágang:
** Sólveig Andrea Jónsdóttir, innanhúsarkitekt, veitti ráðgjöf við hönnun innréttinga, gólfefna og litaval. Íbúðirnar eru vandaðar og fallega innréttaðar. Veggir og loft er málað í ¼ Hör.
** Innbyggð sturtutæki á baðherbergjum. Steinborðplötur eru á eldhúsi og baðherbergjum
** Innfelld lýsing í íbúðum að hluta. Snjallkerfi frá Plejd. Hægt að stýra dimmanlegum ljósum í snjallsíma eða spjaldtölvu. Myndavéladyrasími er í öllum íbúðum.
** Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS. Eldhústæki frá Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, bakaraofn, spanhelluborð og gufugleypir.
** Gólf baðherbergja, þvottahúsa og forstofa eru flísalögð með 60 x 60 flísum frá Ebson. Parket frá Ebson á öðrum rýmum. Ringo innihurðir frá Birgisson
** Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.
** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.
Húsið:
Lautargata 4 er nýtt og glæsilegt hús sem er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ. Húsið er steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús með 19 íbúðum í einum stigagangi. Allar íbúðirnar eru með stórar svalir/sérafnotareiti sem snúa til suðurs. Á 1. hæð er ein íbúð með sérinngangi. Á hæðinni er jafnframt anddyri, geymslur íbúða, hjóla- og vagnageymsla, inntaksrými og upphituð bílageymsla með 12 bílastæðum. Á 2. – 4. hæð hússins eru fimm íbúðir á hverri hæð. Á 5. hæð hússins eru svo þrjár íbúðir með þaksvalir. Seljandi og lóðarhafi hússins er PK Byggingar ehf. Frekari upplýsingar um framkvæmdaraðila hússins má finna í skilalýsingu seljanda.
Umhverfið:
Húsið er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities.
Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður/ löggiltur fasteignasali, 696-0226 eða thorsteinn@remax.is