Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir sex herbergja íbúð á fimmtu hæð við Asparfell 2, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 05-03, fastanúmer 205-1775 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Íbúðin er skráð samkvæmt FMR: 154.7 fm þar af er 4,3 fm geymsla.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús með dökkri innréttingu, harðparket á gólfi.
Borðstofa björt með harðparket á gólfi, útgengt er úr borðstofu út á norðvestur svalir.
Stofa björt og rúmgóð, harðparket á gólfi, útgengt er úr stofu út á rúmgóðar suður svalir.
Hjónaherbergi bjart með fataskáp og harðparket á gólfi
Barnaherbergi
Herbergi eitt bjart með harðparket á gólfi.
Herbergi tvö bjart með harðparket á gólfi.
Herbergi þrjú bjart með harðparket á gólfi.
Herbergi fjögur bjart með harðparket á gólfi.
Baðherbergi eitt er nýlega endurnýjað, með flísum á gólfi og veggjum og sturtuklefa, upphengdu salerni og innrétting er undir vaski.
Baðherbergi tvö er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari, upphengdut salerniog innréttingu undir vask.
Lítil geymsla er á svefnherbergisgangi.
Ath. Búið er að breyta nýtingu eignar frá upphaflegum teikningum þar sem bætt var við herbergi við stofuna.
Geymsla 4,3 fm er á geymslugangi jarðhæðar.
Sameiginlegt þvottahús fyrir íbúðir á 5. hæð er staðsett á hæðinni. Vagna- og hjólageymsla er staðsett á 1. hæð hússins.
Tveir inngangar eru að húseign frá bílastæðum að framan og að sameiginlegum garði bakatil. Í Asparfelli 2-12 er starfandi húsvörður.
Rafmagnshleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er á bílastæði við húsið.
Um er að ræða góða fjölskyldueign með rúmgóðum herbergjum, tveimur baðherbergjum og björtu alrými, þá er gott aðgengi og stutt í alla helstu þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og almenningssamgöngur.
Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. löggiltur fasteigna- og skipasali löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteigna-skipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp.