Fasteignaleitin
Skráð 23. mars 2026

La Serena Golf - Spánn

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
68 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
43.800.000 kr.
Fermetraverð
644.118 kr./m2
Fasteignanúmer
9944278
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Fasteignasalan TORG í samstarfi við NovusHabitat kynnir vandaðar nýbyggðar íbúðir á einstökum stað í Los Alcázares á Costa Cálida á Spáni.
Við veitum persónulega ráðgjöf og fylgjum kaupendum í gegnum allt ferlið, frá fyrstu skoðun til afhendingar, í samstarfi við trausta sérfræðinga á Spáni.

Um er að ræða glæsilegt nýbyggingarverkefni á frábærum stað við Mar Menor þar sem sameinast strandlífsstíll og rólegt umhverfi við golfvöll. Íbúðirnar eru staðsettar í fremstu línu við hinn vinsæla La Serena golfvöll sem er þekktur fyrir fallega hönnun. Svæðið er sérstaklega eftirsótt meðal golfáhugafólks en jafnframt hentugt fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar, útsýnis og opinna grænna svæða. Aðeins um 1,2 km er í strendur Mar Menor og miðbær Los Alcázares er í göngufæri með úrvali veitingastaða, kaffihúsa og verslana. Öll helsta þjónusta er innan seilingar og svæðið býður upp á hlýtt og þægilegt loftslag allt árið um kring sem hentar jafnt til frístundanota sem heilsárs búsetu. Murcia flugvöllur er í um 25 mínútna akstursfjarlægð og Alicante flugvöllur í um 55 mínútna fjarlægð.

Verkefnið samanstendur af samtals 13 nútímalegum íbúðum með tveimur, þremur eða fjórum svefnherbergjum. Í boði eru íbúðir á jarðhæð með einkagarði og rúmgóðri verönd, íbúðir á miðhæð með stórum svölum og þakíbúðir með sér þakverönd (solarium) þar sem njóta má sólar og útsýnis yfir golfvöllinn og nærliggjandi svæði. Allar eignir eru með sér bílastæði og geymslu í lokuðum bílakjallara með lyftuaðgengi sem eykur þægindi og öryggi.

Íbúðirnar eru hannaðar með nútímalegu og opnu skipulagi þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og samræmt rými. Lögð er áhersla á vandaðan frágang og þægindi í daglegu lífi. Eignirnar eru afhentar með fullbúnum baðherbergjum með innréttingum og sturtugleri, foruppsetningu fyrir miðlæga loftkælingu og rafmagnsgluggatjöldum í svefnherbergjum. Um er að ræða nútímalegar og vel skipulagðar eignir sem henta bæði sem sumarhús, til heilsárs búsetu eða sem fjárfesting til útleigu. Verð er frá um 43 milljónum króna eftir stærð og staðsetningu innan verkefnis.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.

Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum. Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda, þannig að heildarkostnaður getur numið um 13% ofan á kaupverð. Við veitum aðstoð við allt kaupferlið á Spáni sem felur meðal annars í sér útgáfu NIE-númers, opnun bankareiknings og aðkomu lögfræðings. Algengt er að fjármögnun fáist hjá spænskum bönkum að hluta til, oft á bilinu 50–70% af kaupverði, háð mati á greiðslugetu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Daggarvellir 1
3D Sýn
Skoða eignina Daggarvellir 1
Daggarvellir 1
221 Hafnarfjörður
120.1 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 7b
3D Sýn
Skoða eignina Hringhamar 7b
Hringhamar 7b
221 Hafnarfjörður
73.3 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 52
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
103.8 m2
Fjölbýlishús
514
866 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 52
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
93.1 m2
Fjölbýlishús
413
751 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin