Fasteignaleitin
Skráð 3. apríl 2025

SPÁNAREIGNIR - La Mata

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
92 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
39.100.000 kr.
Fermetraverð
425.000 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
102030425
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
 SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Á STRÖND - GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG ALLA ÞJÓNUSTU*


Vandaðar og fallegar 3ja herb. (2 svefnherb. + 2 baðherb.)  íbúðir í lyftublokk á frábærum stað við La Mata ströndina, stutt frá   Torrevieja, ca. 30 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Mögnuð sjávarsýn og aðeins örstutt göngufæri á ströndina. Fallegur, gróinn sundlaugargarður. Frábærir veitingastaðir, verslanir ofl. í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð við ströndina.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  adalheidur@spanareignir.is.  00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.


Nánari lýsing:
Um er að ræða glæsilega 3ja herb. íbúð í vönduðum og fallegum fjölbýlishúsum í örstuttu göngufæri niður á hina vinsælu La Mata strönd. Rótgróið umhverfi með allri þjónustu í göngufæri. Fallegur  sundlaugargarður með góðri aðstöðu. Leiksvæði fyrir börnin, góð aðstaða fyrir slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar. 

Íbúðirnar eru rúmgóðar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Góðar svalir með sjávarsýn. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Stæði í bílakjallara  ásamt sér geymslu. Hægt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum gegn aukagjaldi.

Miðborg Torrevieja er í göngufæri og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum: frá 270.000 Evrur + skattur og kostnaður við kaupin.

Tilbúnar til afhendingar í apríl 2025 - október 2026.
Íbúð 66 fm.
Svalir 26 fm
Samtals 92 fm. sérafnota-fm.

Á sama stað er líka hægt að velja penthouse íbúðir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum + svölum og stórum einka þaksvölum. Verð frá 530.000 Evrum + skattur og kostnaður við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, La Mata,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
102030425

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kristnibraut 97
3D Sýn
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Kristnibraut 97
Kristnibraut 97
113 Reykjavík
110,2 m2
Fjölbýlishús
413
725 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Vindás 1
3D Sýn
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Vindás 1
Vindás 1
110 Reykjavík
104,8 m2
Fjölbýlishús
412
692 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 3
3D Sýn
Skoða eignina Dalsbraut 3
Dalsbraut 3
260 Reykjanesbær
101,7 m2
Fjölbýlishús
413
638 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 1A
Skoða eignina Jötundalur 1A
Jötundalur 1A
260 Reykjanesbær
81,7 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 56.000.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin