LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með tvennum svölum í fallegu fjölbýlishúsi við Ástún 14 í Kópavogi. Framkvæmdum er nýlokið á húsinu að utan, helstu verkþættir eru múr- og steinsteypuviðgerðir, endurnýjun ónýtra glugga og hurða, endurnýjun á þaki, rennum og niðurfallsrörum og málun og filtun svala. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan t.a.m var baðherbergi og eldhúsið endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan. Árið 2020 voru skápar endurnýjaðir í forstofu, svefnherbergjum og á baðherbergi. Árið 2022 var skipt um alla ofna nema einn og dyrasímar endurnýjaðir. Innihurðir hafa verið endurnýjaðar ásamt glugga í eldhúsi.
Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 93,1 fm., merk: 02-02. Geymslan er ekki skráð í heildarfermetrana og er hún um 7 fm og mætti því líta á að eignina sé um 100 fm með geymslu.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í
anddyri / forstofu með rúmgóðum fataskáp. Innaf anddyrinu / forstofunni er
herbergi með fataskáp. Frá forstofunni / anddyrinu tekur við
parketlagður gangur og á hægri hönd er
þvottahús með innréttingu og glugga. Flíslagt
baðherbergi í hólf og gólf, walk-in sturta, neðri skápur, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi. Falleg ljós innrétting í
eldhúsi með nýlegum eldhústækjum, rúmgóður borðkrókur. Björt og
rúmgóð stofa og
borðstofa með útgangi út á svalir með glæsilegu útsýni.
Tvö svefnherbergi til viðbótar og er fataskápur í báðum herbergjum. Frá hjónaherbergi er unnt að ganga út á svalir.
Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir
sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérmerkt bílastæði á lóðinni. Húsfélagið á tvær íbúðir sem eru í útleigu og renna leigutekjurnar í hússjóðinn.
Virkilega góð staðsetning á grónum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslanir ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvogsdalnum.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.isUmsagnir viðskiptavina HÉRFylgdu mér á FacebookFylgdu mér á InstagramPantaðu
FRÍTT söluverðmat á
www.frittsoluverdmat.is Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat