Domusnova fasteignasala hefur fengið til einkasölu gott parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Blikaás í Hafnarfirði. Eignin er í botnlanga í fjölskylduvænu hverfi . Birt stærð er 209,7 fm og er bílskúrinn þar af 23,6 fm. Húsið er allt mjög rúmgott. Gott hellulagt bílaplan fyrir framan hús. Fjögur svefnherbergi og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi í garð. Svalir með góðu útsýni.Á neðri hæði er forstofa, þvottahús, gestasnyrting, eldhús, búr, stofa/borðstofa og tvær geymslur, innangengt er í innbyggðan bílskúr.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, öll með fataskáp, baðherbergi, sjónvarpshol og útgengt á svalir.
Neðri hæð:Rúmgóð
forstofa með skáp.
Gestasnyrting með glugga.
Eldhús með viðarinnréttingu og borðkrók, sem er opinn inn í stofuna.
Innaf eldhúsinu er gott
búr með glugga og hillum.
Rúmgóð
stofa/borðstofa með dyr út í garðinn og hellulagða verönd.
Rúmgott
þvottahús með glugga og innréttingum.
Gengið er úr
geymslu inn í innbyggðan
bílskúr.
Flísar eru í öllum rýmum.
Tréstigi er á milli hæða og er
geymsla undir honum að hluta.
Efri hæð:Mjög rúmgóð
4 svefnherbergi og eru öll með fataskápum, viðarparket á allri hæðinni nema á baðherbergi sem er mjög rúmgott og er það flísalagt, baðkar og sturtuhaus. Rúmgott sjónvarpshol með útgengi á svalir með góðu útsýni.
Bílskúr er innbyggður með rafmagnsopnun, stærð 23,6fm, steingólf.
Lóðin er með hellulagðri verönd og hellulagt bílaplan fyrir framan húsið með hitalögn.
Gott skipulag er í húsinu og nýtast rýmin vel, öll herbergi eru rúmgóð. Ágætis útsýni er frá svölum á efri hæð. Eignin er í lokuðum botnlanga, og er aldeilis frábært fjölskylduhús. Um er að ræða timburhús.
Á undanförnum árum hefur bílaplan að framan verið hellulagt og hitalögn lögð í það, skipt hefur verið um svalahurðir bæði á neðri og efri hæð og þakpappa á svölum.
Nánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.