Fasteignaleitin
Opið hús:18. apríl kl 13:00-14:00
Skráð 16. apríl 2026

Laugavegur 170 íb201 Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
118.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
1.030.431 kr./m2
Fasteignamat
59.000.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2536408
Landnúmer
103420
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
tvennar
Lóð
0,88
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
*** Bókið skoðun fyrir allar íbúðir að Heklureit í S: 856-5858 ***
Fasteignasalan TORG Kynnir: Góð 4ra herbergja íbúð með svalir og bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er merkt:201 á Laugavegi 170. Íbúðin er alls 118,3fm að stærð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 108,8fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu með útgengi út á svalir . Tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign merkt: 0034, skráð 9,5fm. Íbúðin fylgir bílastæð merkt: B26.  Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Margrét Rós Einarsdóttir, fasteignasali í GSM: 856-5858 eða margret@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Heklureiturinn. 
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2536408
Byggingarefni
Steypa
Númer eignar
B26

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7a (401)
Opið hús:19. apríl kl 13:00-13:30
0S6A3711.jpg
Eirhöfði 7a (401)
110 Reykjavík
188.5 m2
Fjölbýlishús
413
1141 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7c (605)
Opið hús:19. apríl kl 13:00-13:30
DJI_20260113114438_0338_D.jpg
Eirhöfði 7c (605)
110 Reykjavík
105.9 m2
Fjölbýlishús
312
1085 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Iðnbúð 2
Skoða eignina Iðnbúð 2
Iðnbúð 2
210 Garðabær
43 m2
Fjölbýlishús
212
1021 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 72
Bílskúr
Skoða eignina Axlarás 72
Axlarás 72
221 Hafnarfjörður
356.3 m2
Raðhús
43
393 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin