Fasteignamiðstöðin er með til sölu glæsilegar sumarhúsalóðir og sumarhús í Fjallalandi við Leirubakka, 851 Hella. Fastanúmer 000-0330.Aðeins 102 km frá Reykjavík á malbikuðum vegi. Lóðirnar sem allar eru eignarlóðir, eru í kjarri vöxnu hrauni við Ytri-Rangá, eina fallegustu bergvatnsá landsins. Mikil og fögur fjallasýn er af svæðinu, þar sem vel sést til Búrfells, Heklu, Bjólfells, Tindfjalla, Eyjafjallajökuls og Þríhyrnings. Þá eru útivistarmöguleikar á þessum slóðum ótakmarkaðir allan ársins hring, hvort heldur er á láglendi eða á hálendinu, sem er örskammt undan. Náttúruperlur á borð við Réttarnes, Skarfanes, Tröllkonuhlaup, Landmannalaugar, Hrafntinnusker og Veiðivötn eru örskammt undan og nær allir helstu ferðamannastaðir á Suðurlandi eru í innan við einnar klukkustundar akstur frá Fjallalandi. Fjallaland er þekkt fyrir mikla veðursæld og heit sumur, enda voru fyrr á öldum miklir og gróskumiklir birkiskógar á þessum slóðum, sem nú eru óðum að vaxa upp aftur. Í Fjallalandi eru lóðirnar seldar með vegi, rafmagni og köldu vatni að lóðarmörkum, og hitaveita stendur einnig til boða. Þá er heima á Leirubakka boðið upp á margvíslega þjónustu við svæðið, þar er til dæmis hótel og veitingasala, tjaldstæði, veislusalir, og Heklusýning í nýju Heklusetri. Þá er hafinn undirbúningur að golfvelli, hestaleiga er á staðnum, boðið verður upp á leikjanámskeið fyrir börn og unglinga, menningargöngur og kvöldvökur og margt fleira. Allar lóðirnar í Fjallalandi eru á fallegu mosa- og kjarrivöxnu hrauni. Mikið útsýni er frá þeim öllum. Lóðirnar eru allar stórar, eða frá 5 þúsund fermetrum upp í 12 þúsund fermetra. Mjög rúmt er um lóðirnar og svæðið skipulagt með það í huga að opin svæði og gönguleiðir séu greiðar.
Nánar upplýsingar á www.fjallaland.is og í síma 893 5046. Tilvísunarnúmer 13-0940
Sjá hér, Höfuðból - kort og
Höfuðból Leirubakka - sölukynningNánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.