*** Leiga með kauprétti í boði. Láttu 12 mánaða leigu ganga upp í kaupverð ***
LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta, snyrtilega og rúmgóða 3 herbergja 89.9 fm íbúð á 3 hæð við Skógarbraut 921. Harðparket er á öllum rýmum utan baðherbergis sem er flísalagt í hólf og gólf.
Birt stærð eignar er 89.9 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 3,2 fm geymsla.
Eignin skiptist í eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús í sameign og geymslu.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is
Húsgjöld eignar eru 28.000 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, rafmagn í sameign, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.