Fasteignaleitin
Skráð 7. júlí 2026

Álfaborgir 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
86.3 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
798.378 kr./m2
Brunabótamat
45.150.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22332201
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali, og EV fasteignasala slf. kynna virkilega fallega og vel skipulagða 86,3 fm þriggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) með sérinngangi af svölum. Eignin nýtur frábærs útsýnis og er staðsett á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og afþreyingu, allt í þægilegu göngufæri.

Íbúðin er laus við kaupsamning.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur. Innaf forstofu er geymsla.
Stofa / borðstofa: Bjart og opið alrými með nýlegu harðparketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar og sólríkar suðursvalir með fallegu útsýni.
Eldhús: Hvít og snyrtileg innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Flísar á gólfi, góður borðkrókur og fallegt útsýni. Tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með vaskaskáp, baðkari með sturtu, flísum á gólfi og að hluta til á veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi með opnanlegu fagi.

Gólfefni: Harðparket og flísar.
Sérgeymsla: Sérgeymsla í sameign á jarðhæð, skráð 3 fm.
Hjólageymsla: Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð.
Bílastæði: Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali
Sími 840 0314
einar@provobis.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Pro vobis ehf.
https://provobis.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 405
Bílastæði
Opið hús:11. júlí kl 12:00-12:30
Jöfursbás 3B íb 405
112 Reykjavík
96.5 m2
Fjölbýlishús
312
932 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 404
Bílastæði
Opið hús:11. júlí kl 12:00-12:30
Jöfursbás 3B íb 404
112 Reykjavík
94.6 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 305
Bílastæði
Opið hús:11. júlí kl 12:00-12:30
Jöfursbás 3B íb 305
112 Reykjavík
90.5 m2
Fjölbýlishús
312
944 þ.kr./m2
85.400.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 206
Bílastæði
Opið hús:11. júlí kl 12:00-12:30
Jöfursbás 3B íb 206
112 Reykjavík
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
963 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin