Fasteignaleitin
Skráð 29. apríl 2024
Deila eign
Deila

Víðiholt 10

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
180 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
104.000.000 kr.
Fermetraverð
577.778 kr./m2
Fasteignamat
13.100.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2527608
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
1 - Samþykkt
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna frábærlega staðsett raðhús á Álftanesi -  Sýnum alla daga!!
Húsin eru glæsilega hönnuð 5 herbergja raðhús, ca 180 fm á tveimur hæðum.  Inngarðar veita fallega birtu inn í alrými hússins.  Fullfrágengin lóð. Húsin afhendast fullkláruð án gólfefna, tilbúin til innréttinga eða rúmlega fokheld skv. skilalýsingu.
Víðiholt 10 er endaraðhús.  Verð fyrir rúmlega fokhelt hús er kr. 104.000.000 kr.  tilbúið til innréttinga kr. 123.000.000 kr.  Fullbúið 134.000.000 kr.
Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar og bóka skoðun - Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsd., lgf., s. 863-8813 eða elka@fstorg.is 


***heimasíða verkefnis - smella hér*** 

***Google Maps staðsetning smella hér***


Sveit í borg er réttnefni fyrir Álftanesið. Raðhúsin eru staðsett steinsnar frá gylltri fjörunni og sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur. 
Í raðhúsunum er sú nýlunda að í miðju hvers húss er garður sem hleypir inn birtu, svæði þar sem hægt er að tengja við náttúruöflin og ná jafnvægi eftir eril dagsins.
Afhending fer fram í vor/sumar - hægt er að fá nánari upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma á hverju húsi fyrir sig.

Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsd., lgf., s. 863-8813 eða elka@fstorg.is 

Nánari lýsing;
Víðiholt er staðsett á eftirsóknarverðum stað, miðsvæðis á Álftanesi. Svæðið er nálægt grunnþjónustu, s.s skóla, leikskóla, almenningssamgöngum, íþrótta- og útivistarsvæði og má segja að hverfið sé sveit í borg þar sem hesthúsahverfið við Breiðumýri þar sem Sóti hestamannafélag hefur aðsetur er í mikilli nálægt. Svæðið afmarkast af Breiðumýri til norðausturs og hesthúsasvæði til norðvesturs. Að sunnan nær svæðið að íbúðarbyggð við Asparholt og Lyngholt. Aðkoma að svæðinu er um Breiðumýri. Á svæðinu verða 2 fjölbýlishús með 25 íbúðum hvort um sig, 1 parhús og 18 raðhús. Áhersla er lögð á að byggðin myndi skjólgóð og falleg græn svæði til almennra nota.
Stuðlað er að samræmi í byggðinni með meginformi húsa, þakform, halla og frágang. Efnisval er valið með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald
Húsagatan Víðiholt verður vistgata þar sem bílastæði liggja þvert á akstursstefnu. Gert er ráð fyrir upplýstum göngustígum sem tengjast við göngu- og hjólastígakerfi Garðabæjar sem tengir byggðina við grænt svæði.
-------
Víðiholt 2-24 samanstendur af einu parhúsi, þrem lengjum af 5 eininga sambyggðum raðhúsum og einni lengju af 3 eininga sambyggðum raðhúsum. Uppbygging húsanna er úr krosslímdum timbureiningum sem eru einangruð að utan og klædd með veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu. Leitast er við að nýta vel hvern fermeter og er innra skipulag sveigjanlegt.  Komið er inn um aðalinngang inn í anddyri þar sem er gestasalerni og geymsla, frá anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir og eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu. Á fyrstu hæð er einnig gestaherbergi/skrifstofa og útigeymsla með sér inngangi. Á efri hæð er sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og 3 herbergi. Stigi og stórir gluggar veita birtu á milli hæða um ljósgarð sem er á milli húsa.
------
Útveggir raðhúsa eru úr CLT krosslímdum timbureiningum, einangraðir að utan og klæddir með viðhaldslítilli álbáru í hvítum lit og timbri á völdum stöðum í gráum lit sem sameina fallegt útlit, endingu og þol gagnvart íslenskri veðráttu. Þök á húsunum eru einhalla úr CLT einingum með pappalagi, einangrun og ásoðin tvö pappalög. Þak er frágengið með úthagatorfi.  Svalir og svalahandrið eru úr heitgalvaniseruðu stáli.  Gluggar eru verksmiðjuframleiddir ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Rationel með slitinni kuldabrú. Gler er tvöfalt k-einangrunargler. Útihurðir eru einnig frá Rationel.  Utanhúss lýsing er samkvæmt teikningum raflagnahönnuðar. Vönduð led útilýsing er undir milliplötu við aðkomu/bílastæði. Útilýsing er á vegg í inngarði og garði ásamt útitengli.  Ídráttarleið er fyrir rafhleðslustöð frá aðaltöflu að útvegg við aðkomu/bílastæði. Ídráttarrör fyrir rafmagn er frá aðaltöflu að verönd.  Lóð umhverfis húsið verður jöfnuð í rétta hæð og þökulögð. Bílastæði og aðkoma verða hellulögð. Inngarður er frágengin með hellum. Snjóbræðsla er í bílaplani, aðkomu og inngarði. Sólpallur/verönd/skjólveggur fylgir ekki. Ídráttarrör fyrir vatnslögn er frá inntaksgrind að verönd.
----
Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum samkvæmt skilalýsingu en án gólfefna að undanskildu anddyri, baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu innan íbúðar sem eru flísalögð. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá VOKE-3. Gólfhiti er á neðri hæð, á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi en gólfhiti á baðherbergi.  Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum (CLT) , yfirborð þeirra verður annarsvegar sýnilegt CLT (langveggur í stofu og aðliggjandi veggur móts við stofu ásamt gluggavegg í samliggjandi svefnherbergjum á efri hæð) og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað. Allt sýnilegt CLT er ómeðhöndlað. Aðrir innveggir eru úr blikkstoðum, klæddir með gifsi og eru spartlaðir og málaðir. Veggir eru málaðir í ljósum lit. Veggir á böðum sem verða flísalagðir eru klæddir baðplötum. Timbur límtréssúlur við inngarð eru sýnilegar og ómeðhöndlaðar.  Loft eru sýnileg úr ómeðhöndluðum krosslímdum timbureiningum nema í anddyri, geymslum, baðherbergjum og þvottahúsi þar sem verður niðurtekið loft máluð í ljósum lit. Stálbitar í loftum eru sýnilegir í hvítum lit, ral 9016.  Hurðir eru hefðbundnar yfirfelldar hurðir. Innihurðir eru sprautulakkaðar hvítar, frá Ebson eða sambærilegt.  Gólf á baðherbergjum, þvottahúsi, anddyri og geymslu innan íbúðar eru flísalögð með gæðaflísum í ljósgráum lit stærðinni 60x60cm. Öðrum rýmum íbúðar er skilað án gólfefna.
-----
Eldhúsnnrétting og eldunareyja eru frá innréttingarframleiðandanum VOKE-3 og eru í ljósum eða dökkum lit skv. vali kaupanda. Eldhús skilast með veggofni og spanhelluborði. Íbúðum er skilað til kaupanda án gufuhleypis, kæli-/frystiskáps og uppþvottavélar.  Baðherbergi á neðri hæð er með sturtu og skilast með sturtugleri.  Baðherbergi á efri hæð er með baðkari og sturtu, á milli sturtu og baðkars kemur veggur ásamt gleri til afskermingar. 
----

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambamýri 2
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 2
Lambamýri 2
225 Garðabær
122.2 m2
Fjölbýlishús
322
867 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 2
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 2
Lambamýri 2
225 Garðabær
146.4 m2
Fjölbýlishús
523
730 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 3
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 3
Lambamýri 3
225 Garðabær
122.5 m2
Fjölbýlishús
322
864 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 4
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 4
Lambamýri 4
225 Garðabær
123.5 m2
Fjölbýlishús
312
857 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache